Skráning hafin fyrir skráningardaga haustannar í leikskóla

Leikskólabarn að lesa bók

Þau sem ætla að nýta sér þjónustu leikskóla borgarinnar þá daga sem grunnskólarnir eru í haustfríi, 22., 23. og 26. október næstkomandi og á milli jóla og nýárs, þurfa að skrá börn sín sérstaklega. Opið er fyrir skráningu 10. til 20. september.

Haustfrí og jólafrí

 Skráning fer fram á  Vala leikskóli - Umsóknarvefur.

Gott að hafa í huga:

  • Á skráningardögum er vistun valkvæð.
  • Ef óskað er eftir vistun fyrir barn á þessum dögum þarf að skrá það sérstaklega hér og þá eru greiddar 5.000 kr. fyrir hvern dag.
  • Veittur er 50% afsláttur fyrir yngra systkini og 100% afsláttur fyrir þriðja barn af gjaldi vegna skráningardaga.
  • Ef barn er ekki skráð í vistun er reiknað með að það verði í fríi.
  • Hægt er að skrá barn í vistun staka daga eða alla dagana á haustönninni.
  • Greitt er fyrir þá daga sem barnið er skráð, sama hvort barnið mætir eða ekki.
  • Skráning er bindandi og gildir einungis fyrir þá daga sem barnið er skráð.
  • Ekki er unnt að skrá barn eftir að skráningarfresti lýkur þann 20. september.

Skráning í vetrarfríi grunnskóla í febrúar og í dymbilviku fer fram 10. til 20. janúar.