Skóflustunga tekin að nýjum leikskóla í Fossvogi

Gréta Þórsdóttir Björnsson deildarstjóri fasteigna hjá Reykjavíkurborg, Hannes Þór Baldursson framkvæmdastjóri K16, Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri og Sólveig Björk Ingimarsdóttir verkefnastjóri hjá Reykjavíkurborg.
Skóflustunga að nýjum leikskóla í Fossvogi

Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri tók í gær fyrstu skóflustungu að nýjum leikskóla sem staðsettur er við Fossvogsblett í Fossvogi. Leikskólinn mun hýsa 10 leikskóladeildir sem dreifast í þrjá húshluta.

Leikskólabyggingin er ein hæð og stendur austast á lóðinni. Mikið skóglendi er í kring og stutt í náttúruna. Byggingin er u-laga og liggur í eins konar faðm til vesturs þar sem skjólgott og rólegt útisvæði myndar aðkomutorg leikskólans.

Yngstu börnin verða staðsett í suðurhluta byggingarinnar þar sem eru fjórar deildir. Miðstig skólans verður í austurhlutanum þar sem eru þrjár deildir og elstu börnin verða í norðvesturhluta byggingarinnar þar sem verða þrjár deildir. Í norðurhluta byggingarinnar, á milli deilda mið- og efsta stigs, eru fjölnotasalur, bókasafn og opið rými, listasmiðja, eldhús skólans ásamt aðstöðu starfsfólks. 

Byggingin verður Svansvottuð og gert er ráð fyrir að leikskólinn opni dyr sínar fyrir börnum um mitt ár 2027.


Ævintýranleg lóð

Við hönnun leikskólalóðarinnar við Fossvogsblett var fyrst og fremst horft til þeirra einstöku gæða sem lóðin hefur og reynt eftir fremsta megni að leyfa notendum lóðarinnar að njóta þessara gæða. Það er ekki algengt að nýjar leikskólalóðir skarti eins miklum trjágróðri og þessi lóð og er áhersla lögð á að börnin hafi gott aðgengi að þessum grónu og villtari svæðum sem við erum viss um að fái frjálsan leik barnanna til að blómstra. Á lóðinni var lögð áhersla á að halda í stór og einkennandi tré á svæðinu og lóðin hönnuð í kringum þau en auk þeirra liggur hluti Svartaskógar innan lóðarinnar.

Lóðin er skipulögð á þann máta að næst leikskólabyggingunni er að finna leikbúnað og harðari yfirborðsefni sambærileg þeim sem við þekkjum frá leikskólalóðum hér á landi. Leikkofar, sandkassar og rólur með timburyfirbragði í takt við umhverfið standa nærri byggingunni en þegar lengra er haldið út á lóðina verður yfirbragð lóðarinnar náttúrulegra og á köflum algerlega óhreyft frá því sem er í dag. Útikennslusvæði með bálstæði inni í skóginum gefur tækifæri til að fara í ævintýraferðir innan lóðarinnar þótt nálægðin við útivistarparadísina í Fossvoginum gefi gott færi á lengri leiðöngrum.

Tvo minni garða má finna við austurhlið leikskólans. Eru þeir tengdir við smiðjur í byggingunni og má því auðveldlega nýta þau svæði til sköpunar og leiks sem fram fer í þeim smiðjum auk ræktunar í uppbyggðum ræktunarkössum og gróðurhúsi.