Skipulag skólaþorps í Laugardal samþykkt

Séð yfir laugardalinn

Borgarstjórn samþykkti í vikunni breytta landnotkun aðalskipulags og deiliskipulagsbreytingu vegna skólaþorps við Reykjaveg í Laugardal. 

Breytingin á deiliskipulagi felur í sér að lóð sem áður var skilgreind fyrir Ævintýraborg, tímabundið leikskólaúrræði Reykjavíkurborgar, er breytt í lóð fyrir skólaþorp, tímabundið grunnskólaúrræði Reykjavíkurborgar. Breyting á aðalskipulagi felur í sér breytta landnotkun á 1,2 ha af skilgreindu íþróttasvæði sem breytist í samfélagsþjónustu fyrir skólaþorp. Tillögur að breytingum á aðal- og deiliskipulagi voru í auglýsingu í sex vikur haustið 2025. Að lokinni auglýsingu var unnið úr athugasemdum og samráðsfundir haldnir með hagaðilum eftir þörfum. 

Tilefni breytingarinnar er að skapa skilyrði fyrir skjóta uppbyggingu skólastofnana til að mæta brýnni viðhaldsþörf sem nú er til staðar í nálægum skólahverfum, einkum í Laugarness-, Langholts- og Laugalækjarskóla. Breytingarnar voru unnar eftir þörfum og í samráði við Skóla- og frístundasvið Reykjavíkurborgar til að mæta tímabundnu ástandi í skólahverfunum. 

Staðsetning skólaþorpsins og framtíðarsýn Laugardals 

Fjölda valkosta var velt upp við ákvörðun svæðisins og staðsetning meðal annars valin á grundvelli þess að svæðið er þegar raskað í stað þess að leita á rólegra eða grænna svæði í Laugardal, að góð samlegðaráhrif eru milli íbúðarbyggðar, íþróttasvæða og samfélagsþjónustu og því að staðsetningin er miðlæg fyrir grunnskólana þrjá. Athugasemdir á auglýsingatíma sneru einnig að því að breytingin setti fordæmi fyrir frekari breytingum í Laugardal, sérstaklega á íþróttasvæðum. Frá því að rammaskipulag var samþykkt fyrir Laugardal árið 2005 hefur svæðið eflst sem fjölbreytt íþrótta- og útivistarsvæði. Til lengri framtíðar má til dæmis með uppbyggingu Þjóðarhallar, horfa til frekari samlegðar milli íþróttastarfsemi og samfélagsþjónustu á svæðinu, jafnframt því að efla grænu svæðin sem einkenna Laugardalinn. 

Í niðurstöðum samgöngumats kemur fram að skólaþorpið er vel staðsett þegar horft er til almenningssamgangna og virkra ferðamáta.  

Samráð við viðbragðsaðila 

Við auglýsingu komu fram athugasemdir um útfærslu aðkomuleiða í deiliskipulagi frá ýmsum hagsmunaaðilum ásamt viðbragðsaðilum. Í framhaldi auglýsingar fór fram samráð við Slökkvilið Höfuðborgarsvæðisins og Lögreglunnar á Höfuðborgarsvæðinu til að tryggja aðkomu þeirra að svæðinu og að breytingar deiliskipulags takmarki ekki fjölda fólks á viðburðum í Laugardal, sérstaklega á þjóðarleikvanginum. Niðurstaða náðist um lausn fyrir aðkomuleiðir að Laugardalsvelli, þar sem nýrri innkeyrslu verður bætt við sem liggur að bílastæði aðeins norðan við núverandi aðkomu. Nýja leiðin verður aðgangsstýrð með kerfi sem viðbragðsaðilar hafa aðgang að og sem gefur einnig möguleika á að opna leiðina fyrir almenning, til dæmis við fjölmenna viðburði utan skólatíma eða þegar þörf er á vegna framkvæmda. Leiðin verður annars lokuð, en forgangur er settur á öryggi gangandi vegfarenda og að fækka þverunum yfir akandi umferð.