Skiptiskjólin verða í geymslu í vetur

Skiptiskjólið við Sundlaugarveg.
Skiptiskjólið við Sundlaugarveg.

Skiptiskjól Reykjavíkur eru sumarverkefni sem verða nú sett í geymslu fyrir veturinn en sett aftur upp næsta sumar. Markmið skiptiskjóla í Reykjavík er að vekja athygli á og styrkja hringrásarhagkerfið. Verkefnið hófst árið 2025 og var á þremur stöðum nú í sumar. 

Fyrsta skiptiskjólið var sett upp við Sundlaugaveg. Þetta var tilraunaverkefni sem fékk góðar viðtökur íbúa og því var ákveðið að setja upp tvö ný skiptiskjól í sumar, eitt við Eiríksgötu og hitt við Sogaveg. Með þessu var þjónustuna færð nær íbúum og til að styðja við mikilvægi þess að nýta hluti vel í stað þess að henda þeim eða kaupa nýtt.

Skiptiskjólin eru ávallt staðsett við grenndarstöðvar og hefur Sorpa haft eftirlit með þeim eins og öðrum grenndarstöðvum á höfuðborgarsvæðinu. Skiptiskjólin eru líka gott dæmi um hringrásarhagkerfið en þau eru endurgerð strætóskýli með hillum. Skjólin eru ætluð fyrir minni nytjahluti.

„Við viljum um leið og við komum skjólunum í geymslu þakka fyrir góðar viðtökur, svo höldum við áfram næsta sumar,“ segir Friðrik Klingbeil Gunnarsson, verkfræðingur á skrifstofu umhverfisgæða hjá Reykjavíkurborg.