Skemmtilegt skólablað í Víkurskóla
Sjö ungmenni í Víkurskóla hafa undanfarið unnið að skólablaði sem nú er komið út á netinu. Efnið er fjölbreytt og skemmtilegt og allt er það bæði hannað og skrifað af nemendum í níunda og tíunda bekk.
Hvað er að frétta Víkurskóli? er nafnið á nýjum valáfanga þar. Sjö ungmenni skráðu sig og nú hefur afurðin þeirra litið dagsins ljós, vefsíðan www.hvað.is. Björk Gunnbjörnsdóttir heldur utan um áfangann en ungmennin vinna blaðið alfarið sjálf; allt frá því að setja upp síðuna að efni hennar. Áfanginn verður aftur í boði í haust og mikil stemmning er í hópnum hjá þeim sem eru að klára níunda bekk, að taka aftur þátt í verkefninu að sumarfríi loknu. Raunar er áhuginn svo mikill að þótt tímum annarinnar í faginu sé lokið, ætla þau að halda áfram að setja inn efni fram að skólaslitum.
„Þetta gekk hægt í byrjun, það þurfti að ákveða margt og setja upp vefinn. Við prófuðum nokkrar vefsíður og það er ekkert víst að þetta verði endanleg uppsetning en þessi reyndist fljótleg til að koma verkefninu af stað. Þau gerðu þetta allt sjálf og kunna orðið betur á þessa síðu en ég,“ segir Björk. „Það kom skemmtilega á óvart hvað þau eru áhugasöm, það er ekkert sjálfsagt.“
Gleðja með gróusögum
Ungmennin skipta með sér hlutverkum og sinna til dæmis ritstjórn, fréttaskrifum, hönnun og auglýsingamálum. Efnið er af ýmsum toga en nefna má umfjöllun um starfið í skólanum, plötu og bíómynd vikunnar, viðtöl og hinar skemmtilegu gróusögur, þar sem ungmennin spinna fjörlegar falsfréttir. Þá gera þau kannanir meðal samnemenda sinna og segja þau helst hafa komið á óvart að danska reyndist uppáhaldsfag nemenda í Víkurskóla. Sem er kannski enn skemmtilegri staðreynd í ljósi þess að ein falsfréttin fjallaði einmitt um að danska væri ekki lengur kennd og nemendur mættu því glaðir í skólann.
Við mælum eindregið með heimsókn á síðu blaðsins og hver veit nema þarna séu á ferð blaðamenn, hönnuðir eða rithöfundar framtíðarinnar? Við skemmtum okkur líka vel yfir tik tok reikningi blaðsins, hvaderadfrettablad.
Á samfélagsmiðlum Reykjavíkurborgar er að finna myndband, þar sem spjallað er við ungmennin um þetta skemmtilega og metnaðarfulla verkefni!