Sjálfstraust og fjölbreytileiki í Breiðholt Got Talent
Það ríkti stemning og gleði þegar frístundaheimili og félagsmiðstöðvar Miðbergs héldu hina árlegu hæfileikakeppni Breiðholt Got Talent 2026. Hátíðarsalurinn fylltist af hlátri, lófaklappi og tilhlökkun þegar ungir keppendur stigu á svið, djarfir og skapandi, og sýndu hæfileika sína á degi sem mörg höfðu beðið með eftirvæntingu.
Vettvangur til að láta ljós sitt skína
Viðburðurinn hefur verið órjúfanlegur hluti af starfi frístundaheimila og félagsmiðstöðva í Breiðholti síðan árið 2009. Á þessum 17 árum hefur hann staðið af sér starfsmannabreytingar, heimsfaraldur og samfélagsbreytingar en lifað áfram vegna þess að hann skapar tækifæri sem annars eru vandfundin. Þetta kemur fram í grein sem Sigrún Ósk Arnardóttir og Valgeir Þór Jakobsson skrifuðu og birtu á Vísi nýlega en þau starfa á frístundaheimili og í félagsmiðstöð innan Miðbergs. Keppnin gefur börnum og unglingum vettvang til að þora, prófa sig áfram, hlæja, skína og læra. Þátttaka gefur börnum tækifæri til að vera séð og viðurkennd af jafningjum eins og þau Sigrún og Valgeir benda á.
Glæsileg frammistaða í keppni frístundaheimilanna
Undirbúningur fyrir keppnina stóð víða í Breiðholti vikurnar á undan, þegar frístundaheimilin Álfheimar, Bakkasel, Hraunheimar, Regnboginn, Vinafell, Vinaheimar og Vinasel æfðu sín atriði af miklum metnaði. Hvert heimili valdi tvo fulltrúa sem stigu síðan á svið í aðalkeppninni.
Atriðin voru fjölbreytt og fagmannlega unnin og vöktu bæði lukku og aðdáun. Dómnefndin átti erfitt verk fyrir höndum en að lokum hlutu sigur:
Jökull Freyr, Þorbergur Maron, Atlas Þór og Elmar Árni úr Regnboganum. Strákarnir unnu hjörtu áhorfenda með kraftmiklu og vel útfærðu atriði.
Kynnir dagsins, Hafsteinn Vilhelmsson, hélt uppi góðri stemningu og sá til þess að salurinn var í stuði allan tímann.
Unglingakeppnin - vitnisburður um fjölbreytileika og skapandi starf
Kvöldið tilheyrði unglingunum, þegar félagsmiðstöðvarnar Bakkinn, Hólmasel, Hellirinn og Hundrað&ellefu buðu upp á tíu frábær atriði. Breiðholtið er samfélag fullt af menningarlegum og félagslegum fjölbreytileika sem kom vel fram á sviðinu. Boðið var upp á ballet, hip hop, þjóðlagatónlist, frumsamda texta og áræðin atriði sem snertu hjörtu áhorfenda.
Spennan var mikil þegar dómnefndin tilkynnti sigurvegara kvöldsins sem voru Nonnie og Abdiraman úr Hundrað&ellefu sem heilluðu alla viðstadda. Erla og Jasmín úr Bakkanum sáu um að stýra kvöldinu af mikilli fagmennsku.
Mikilvæg tækifæri og reynsla
Eins og þau Sigrún og Valgeir fjalla um í grein sinni þá byggir keppnin á mikilvægu starfi fagfólks í frítímanum sem brennur fyrir því að hlúa að börnum og unglingum og styðja þau í að finna sitt innra sjálf. “Að stíga á svið krefst hugrekkis, hvort sem það er að syngja, sýna töfrabrögð, spila á hljóðfæri eða segja brandara. Það eflir sjálfstraustið að yfirstíga fiðringinn í maganum og uppskera lófaklapp frá jafningjum sínum.” Fyrir mörg getur þetta jafnvel verið skrefið í átt að listnámi eða tónlistarferli.
Framtíðin er björt
Frístundamiðstöðin Miðberg og Reykjavíkurborg eru ótrúlega stolt af öllum börnum og unglingum sem tóku þátt. Þau sýndu ekki bara hæfileika heldur hugrekki, gleði, virðingu og samhug. Breiðholt Got Talent 2026 er samfélagshátíð og enn ein staðfesting á því að framtíð Breiðholts er björt.