Samkeppni um ljóslistaverk á Vetrarhátíð 2027

Ljóslistaverkið Ljóslifandi á Austurvelli
Ljóslistaverkið Ljóslifandi á Austurvelli

Reykjavíkurborg stendur fyrir samkeppni um ljóslistaverk í almannarými borgarinnar á Vetrarhátíð 2027. Hátíðin fer fram dagana 4.–7. febrúar næstkomandi.

Vetrarhátíð í Reykjavík var fyrst haldin árið 2002 og hefur markmið hennar frá upphafi verið að lýsa upp skammdegið og bjóða íbúum og gestum að upplifa einstaka stemningu í borginni.

Markmið og áherslur

Markmið samkeppninnar er að efla nýsköpun og íslenskt hugvit sem styður við skapandi og lifandi borg.

Samkeppnin er opin öllum; myndlistar-, tónlistar og ljóstæknifólki, hönnuðum, tölvunarfræðingum eða öðrum þeim sem vinna með rafmagn, ljós og list í einhverju formi. Hægt er að koma með tillögu að staðsetningu eða fá ráðgjöf frá skipuleggjendum.

Horft er til frumleika og má nota ýmiss konar efni til verksins. Hafa skal í huga að hátíðin fer fram utandyra að vetri til og mikilvægt er að tillagan taki mið af því. Kostur er ef verkið er gagnvirkt og/eða innsetning í almannarými borgarinnar.

Tvö verk verða valin og hljóta styrk að upphæð 1.000.000 krónur hvert. Upphæðin er hugsuð bæði til framkvæmdar verksins og þóknunar listafólks.

Áherslur dómnefndar

Dómnefnd leggur áherslur á eftirfarandi þætti í mati sínu:

  • Styrkleiki heildarhugmyndar. 
  • Listrænt gildi tillögu.
  • Áhrif tillögu á almannarýmið.
  • Raunhæfni og kostnað við framkvæmd hugmyndar.

Tímarammi 

  • 21. október 2026 // samkeppni kynnt og opnað fyrir umsóknir.
  • 15. nóvember 2026 // umsóknarfresti lokið.
  • Úrslit tilkynnt í lok nóvember 2026
  • 4.–7. febrúar 2026 // Vetrarhátíð í Reykjavík.
Ljóslistaverk á Vetrarhátíð 2026
Ljóslistaverkið Í nýju ljósi á göngubrúnni við Ráðhús Reykjavíkur

Skilaform og afhending

Tillögur skulu innihalda eftirfarandi: 

  • Myndefni og greinargerð sem sýna og útskýra heildarhugmynd verksins og listrænt gildi tillögu.
  • Kostnaðaráætlun vegna framkvæmdar og þóknunar sigurvegara.
  • Tillögum skal skila á pdf-formi eða í rafrænni framsetningu í gegnum vefsíðuna WeTransfer eða öðru sambærilegu forriti á netfangið vetrarhatid@reykjavik.is fyrir miðnætti 15. nóvember 2026.
  • Nafnleyndar er gætt og tillögur skulu merktar með sex tölustafa auðkennisnúmeri sem þátttakendur velja sjálfir. Með tillögunni skal einnig senda skjal/nafnamiða með sama auðkennisnúmeri sem inniheldur upplýsingar um þátttakendur ásamt nafni, netfangi og símanúmeri tengiliðar hópsins. Starfsmaður dómnefndar er sá eini sem sér þær upplýsingar. Tillögu er veitt viðtaka berist hún innan tilgreinds skilafrests og nafnleyndar sé gætt.

Hægt er að senda fyrirspurnir á: vetrarhatid@reykjavik.is

Úrslit

Þegar dómnefnd hefur formlega lokið störfum í lok nóvember verður nafnleynd rofin og þátttakendum tilkynnt um niðurstöður dómnefndar.

Ef dómnefnd telur enga innsenda tillögu koma til greina til nánari útfærslu áskilur hún sér rétt til að hafna öllum tillögum. Niðurstaða dómnefndar er endanleg.

Reykjavíkurborg áskilur sér rétt til að hafa samband við keppendur sem ekki hljóta verðlaun um mögulegt samstarf.