Samið um kaup á Toppstöðinni í Elliðaárdal

Hilmar Ingimundarson og Heiða Björg Hilmisdóttir.
Hilmar Ingimundarson og Heiða Björg Hilmisdóttir.

Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri undirritaði í dag kaupsamning um sölu á Toppstöðinni við Rafstöðvarveg 4, til Toppstöðvarinnar ehf. Byggingin mun hýsa jaðaríþróttir og aðra starfsemi sem styður við eflingu útivistar og tómstunda í Elliðaárdal. 

Í byrjun júní 2024 auglýsti Reykjavíkurborg Rafstöðvarveg 4 til sölu og í nóvember sama ár samþykkti borgarráð að ganga til samningaviðræðna við hæstbjóðanda, Hilmar Ingimundarson, fyrir hönd óstofnaðs félags, nú Toppstöðin ehf. Kauptilboðið var lagt fram með fyrirvara um lánsfjármögnun, leigusamninga við leigutaka og samþykki Fiskistofu á framkvæmdum og endurbótum samkvæmt ákvæðum laga um lax- og silungsveiði. Bjóðandi hefur nú fjármagnað kaupin að fullu og aðlagað tilboð sitt þannig að kaupsamningsgreiðsla, 420 milljónir króna, greiðist að fullu við undirritun kaupsamnings. 

Útivistar- og jaðaríþróttamiðstöð í hjarta borgarinnar 

Toppstöðin er tæpir 6.500 fermetrar að stærð. Tilboðið felur í sér að húsnæðið verði gert hæft fyrir útleigu og gert að miðstöð útivistar í hjarta Reykjavíkur. Þar verði hýstar jaðaríþróttagreinar og önnur starfsemi sem stutt geti við eflingu útivistar og tómstunda í Elliðaárdal. Áætlaður byggingartími frá undirritun samnings og afhendingu er þrjú ár. 

Til stendur að samtvinna heilsueflandi starfsemi, menningar- og fræðslustarfsemi, stuðning við almenningsíþróttir og þátttöku fjölskyldunnar í íþróttum. Markmiðið er að bjóða upp á bætta aðstöðu fyrir almenning þar sem áhersla er á þjónustu við borgarbúa og gesti þeirra með góðri aðstöðu fyrir fjölbreytta afþreyingu sem nýtist allan ársins hring. „Er það sýn félagsins að þetta geti verið fyrsti áfangi í þróun og uppbyggingu Elliðaárdals sem miðstöðvar íþrótta og útivistar þar sem Elliðaárdalur verður kjarninn í vef útivistarsvæða og göngu- og hjólreiðastíga borgarinnar,“ segir í tilboðsbréfi. Þá er tekið fram að áhersla verði lögð á varðveitingu og varðveislu minja og sögu Toppstöðvarinnar við endurbætur í samráði við hagsmunaaðila.
 

Teiknuð mynd af Toppstöðinni.
Teiknuð mynd af Toppstöðinni en byggingin mun hýsa jaðaríþróttir og aðra starfsemi sem styður við eflingu útivistar og tómstunda í Elliðaárdal.