Rimaskóli, Laugarnesskóli og Engjaskóli hljóta Hvatningarverðlaun í ár

Stúkur í Engjaskóla fyrir framan hamingjuvegg í skólanum.

Skóla- og frístundaráð Reykjavíkurborgar hefur veitt Hvatningarverðlaun ráðsins fyrir skólaárið 2025–2026. Í ár hlutu Rimaskóli, Laugarnesskóli og Engjaskóli viðurkenninguna fyrir fjölbreytta nálgun í náttúruvísindakennslu, fyrir framúrskarandi skólabókasafn og fyrir hamingjuverkefni.

Þetta er í nítjánda sinn sem verðlaunin eru afhent, en markmið þeirra er að vekja athygli á metnaðarfullu og nýstárlegu skóla- og frístundastarfi í borginni. Verðlaunin eru jafnframt hvatning til starfsfólks og staðfesting á því að viðkomandi skóli sé fyrirmynd annarra á sínu sviði. Skólarnir munu kynna verkefnin á menntabúðum á Öskudagsráðstefnu þann 18. febrúar næstkomandi.

Rimaskóli – Fjölbreytt nálgun í náttúruvísindakennslu

Rimaskóli hlýtur verðlaun fyrir verkefnið Fjölbreytt nálgun í náttúruvísindakennslu á unglingastigi. Þar hefur verið byggt upp framsækið og upplifunarmiðað námsumhverfi í náttúrufræði í anda Menntastefnu Reykjavíkur sem leggur áherslu á virkni nemenda, sköpun og fjölbreyttar námsleiðir. Námsmatið er fjölbreytt og hvetjandi og nemendur fá að sýna hæfni sína á ólíkan hátt. Í skólanum er lögð sérstök áhersla á verklega kennslu, rannsóknarvinnu og skapandi nálganir. Markmiðið er að hver bekkur taki þátt í tveimur verklegum æfingum á mánuði, auk vettvangsferða, STEAM-verkefna, ratleikja og útikennslu. Þessi nálgun hefur skapað sterka náttúruvísindamenningu innan skólans þar sem nemendur tengja fræði við raunveruleg viðfangsefni og fá rík tækifæri til að efla forvitni, gagnrýna hugsun og sjálfstæði.

Í umsögn dómnefndar segir að verkefnið sé eftirtektarvert þar sem það styðji við afar fjölbreyttar kennsluaðferðir, nálganir á viðfangsefnið, verklega framkvæmd og fjölþætt námsmat. Nemendur takist á við krefjandi raunverkefni með skapandi hætti þar sem farið er á dýptina. Við aðstæður sem þessar eflist sjálfstæði, styrkur og jákvæð upplifun nemenda af raungreinum. Úr verður eflandi námsmenning í náttúrufræði sem er sannarlega til eftirbreytni.

Hvatningarverðlaun afhent í Rimaskóla.
Jónína Ómarsdóttir, eða Ninna eins og hún er alltaf kölluð, heldur á verðlaununum og er þarna ásamt nemendum sínum sem kunna svo sannarlega að meta sinn góða kennara. Á myndinni eru einnig Helga Þórðardóttir formaður skóla- og frístundaráðs, Alexandra Briem formaður dómnefndar og Þóranna Rósa Ólafsdóttir skólastjóri.

Laugarnesskóli – Skólabókasafn Laugarnesskóla

Laugarnesskóli hlýtur verðlaun fyrir áralangt þróunarstarf sitt í kringum skólabókasafnið sem segja má að sé hjartslátturinn í skólasamfélaginu. Þar ríkir menning þar sem lestur er ekki aðeins hluti af námi heldur uppspretta gleði, forvitni og sjálfstrausts. Árangurinn af öflugu starfi skólabókasafnsins sést skýrt og greinilega, ánægja nemenda af lestri mælist langt yfir landsmeðaltali og útlán eru þau hæstu á íslensku skólabókasafni. Drekaklúbburinn, fyrsti bókaklúbbur sinnar tegundar á íslensku skólabókasafni, ásamt um þrjátíu öðrum klúbbum tryggir að allir nemendur finni sinn hóp og sitt áhugasvið. Stafrænir miðlar skólabókasafnsins styðja einnig við læsi og sköpun. Á rafrænni síðu safnsins birtast vikulegar bókakynningar og upplýsingaskjárinn býður upp á daglegar áskoranir, orð dagsins og spurningar úr vinsælum bókum. Þannig verður bókasafnið lifandi vettvangur lærdóms, samfélagslegrar þátttöku og gleði allra nemenda í skólanum.

Í umsögn dómnefndar segir að sú menning sem skapast hefur á skólabókasafni Laugarnesskóla falli einstaklega vel að Menntastefnu Reykjavíkur, sérstaklega áherslum um læsi í víðum skilningi, inngildingu og farsæld. Bókasafnið er bjart rými sem er fullt af töfrandi bókum og hlutum þar sem öll börn finna lesefni við sitt hæfi og fá tækifæri til að efla orðaforða, lesskilning og upplifun af lestri á eigin forsendum.

Hvatningarverðlaun afhent í Laugarnesskóla
Á myndinni má sjá Vigni Ljósálf Jónsson, umsjónarmann skólabókasafnsins, taka við verðlaunum frá Helgu Þórðardóttur, formanni skóla- og frístundaráðs. Vinstra megin á mynd má sjá Björn Gunnlaugsson skólastjóra, fyrir framan Vigni er barnabarn hans og nemandi við skólann. Hjá Helgu standa Stefán Pálsson, sem er í skóla- og frístundaráði, og Alexandra Briem, formaður dómnefndar.

Engjaskóli – Hamingjuhópurinn

Engjaskóli hlýtur verðlaun fyrir verkefnið Hamingjuhópurinn sem hófst árið 2021 og hefur það markmið að draga úr einmanaleika og efla vellíðan nemenda. Hópurinn er skipaður fulltrúum allra árganga miðstigs og er drifinn áfram af stúlkum í 6. bekk. Nemendur vinna með félags- og tilfinninganám og svara hamingjukvarða þrisvar á ári. Hópurinn rýnir í niðurstöður og mótar aðgerðir sem byggja á gagnreyndum aðferðum og safnar einnig hugmyndum frá nemendum um hvernig bregðast megi við niðurstöðum. Á yfirstandandi skólaári var svokölluð Hamingjustund innleidd í starfið. Hamingjustund fer fram vikulega og byggir framkvæmd hennar á jákvæðum inngripum, VIA-styrkleikum og Circle Solutions. Hamingjustund veitir bæði nemendum og kennurum verkfæri til að efla sjálfsmynd, félagsfærni og jákvæða líðan.

Verkefnið fellur mjög vel að áherslum Menntastefnu Reykjavíkur þar sem fjallað er um nemendur sem virka þátttakendur. Þá eflist félagsfærni, sjálfsefling, læsi, sköpun og heilbrigði. Í umsögn dómnefndar segir að Hamingjuhópurinn í Engjaskóla sýni á eftirtektarverðan hátt hvernig nemendur geta haft raunveruleg áhrif á eigið skólasamfélag hafi þeir vettvanginn til þess. Verkefnið stuðli að aukinni samheldni, jákvæðum samskiptum og bættri líðan. Er það í anda Menntastefnunnar sem segir að „í kraftmiklu skólastarfi öðlast börn menntun og reynslu til að láta drauma sína rætast og hafa jákvæð áhrif á umhverfi og samfélag“ sem sannarlega á við um Engjaskóla og Hamingjuhópinn.

Hvatningarverðlaun afhent í Engjaskóla.
Í efri röð eru Hrafnhildur Inga Halldórsdóttir aðstoðarskólastjóri, Álfheiður Einarsdóttir skólastjóri, Bryndís Ingimundardóttir myndmenntakennari, Helga Þórðardóttir formaður skóla- og frístundaráðs, Stefán Pálsson fulltrúi í skóla- og frístundaráði og Alexandra Briem formaður dómnefndar. Í neðri röð eru stúlkur í 6. bekk sem eru hluti af þeim hópi sem drífur verkefnið áfram.
Dómnefnd

Dómnefnd skipuðu: Alexandra Briem, sem var formaður; Ásta Björg Björgvinsdóttir, Stefán Pálsson og Sabine Leskopf, fulltrúar kjörinna fulltrúa í skóla- og frístundaráði; Ester Helga Líneyjardóttir, fulltrúi stjórnenda; Kristín Björnsdóttir, fulltrúi kennara og Ása Kristín Einarsdóttir, fulltrúi foreldra.

Forsíðumyndin er tekin í Engjaskóla fyrir framan hamingjuvegginn.