Reykjavíkurborg verðlaunuð fyrir stafræna þjónustu

Óskar Þór Þráinsson, María B. Hermannsdóttir, Arna Ýr Sævarsdóttir, Óskar Sandholt, Bryndís Kristjánsdóttir, Inga Rós Gunnarsdóttir, Þröstur Sigurðsson og Ólafur Sólimann Helgason tóku við verðlaununum fyrir hönd þjónustu- og nýsköpunarsviðs borgarinnar. Mynd/Ský
Fólk í röð með blóm.

Þjónustu- og nýsköpunarsvið Reykjavíkurborgar er handhafi UT-verðlauna Ský 2026 fyrir bestu opinberu stafrænu þjónustuna. Verðlaunin, sem hafa fest sig rækilega í sessi, voru afhent í sautjánda sinn á UT-messunni í Hörpu föstudaginn 6. febrúar. Verðlaunin eru veitt árlega þeim lausnum sem þykja skara fram úr í stafrænni þróun og þjónustu.

Verðlaunin eru veitt fyrir öfluga og samfellda stafræna umbreytingu þar sem notendamiðuð þjónustuhönnun og gagnadrifin nálgun hafa verið höfð að leiðarljósi. Óskar J. Sandholt, sviðsstjóri þjónustu- og nýsköpunarsviðs, er þakklátur fyrir þá viðurkenningu sem felst í UT-verðlaununum og segir verðlaunin vera mikla hvatningu til áframhaldandi vinnu við að þróa aðgengilega, skilvirka og notendamiðaða þjónustu fyrir borgarbúa.

Sviðið hefur einfaldað ferla, aukið aðgengi og styrkt þverfaglegt samstarf þannig að borgarbúar fá góða og skilvirka þjónustu. 

Þannig eru UT-verðlaunin viðurkenning á markvissri vinnu og metnaði Reykjavíkurborgar að veita góða og nútíma þjónustu og endurspegla þann árangur sem náðst hefur í þróun stafrænnar opinberrar þjónustu hjá borginni undanfarin ár. 

Hjartað í stafrænni umbreytingu

Í umsögn Ský segir: „Þjónustu- og nýsköpunarsvið er hjartað í stafrænni umbreytingu Reykjavíkurborgar þar sem þjónustuhönnun, notendamiðuð þróun og gagnadrifin ákvarðanataka eru höfð að leiðarljósi. Sviðið hefur einfaldað ferla, aukið aðgengi og styrkt þverfaglegt samstarf þannig að borgarbúar fá góða og skilvirka þjónustu. Árið 2025 þróaði og innleiddi sviðið fjölmargar stafrænar lausnir sem bæta samfellu og sjálfsafgreiðslu og færa tíma starfsfólks frá umsýslu yfir í virði fyrir notendur. Þar má nefna Veitu, sameiginlegt umsóknakerfi um fjárhagsaðstoð, SkólaBúa í þágu farsældar barna, notendavæna gervigreindaraðstoð á vef sem hefur dregið verulega úr álagi í þjónustuveri og innleiðing stafræns vinnuafls sem sinnir síendurteknum verkefnum með sjálfvirkum hætti.“

Fólk í röð með blóm og verðlaun.

Raunveruleg áhrif fyrir fólk

„Árið 2026 snúast verðlaunin einmitt um þau sem kunna að fara með tæknina af öryggi og festu og umbreyta gervigreind, sjálfvirkni og stafrænum lausnum, þannig að þau hafi raunveruleg áhrif fyrir fólk, vinnustaði og samfélagið í heild. Tæknin er ekki lengur til að sýna hvað er hægt heldur til að sýna hvað skiptir máli,“ segir Arnheiður Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri Ský.

Sýslumannsembættin eru handhafar heiðursverðlaunanna í ár og til viðbótar voru veitt verðlaun í fjórum öðrum flokkum. Við óskum öllum verðlaunahöfum hjartanlega til hamingju!