Reykjavíkurborg uppfærir reglur um fjölda bíla- og hjólastæða

Bílastæðum við nýbyggingar getur samkvæmt þessu fjölgað en viðmið fyrir íbúðahúsnæði verður rýmkað um allt að 0,5 bílastæði á íbúð. Mynd/Róbert Reynisson
yfirlitsmynd yfir Reykjavík

Reykjavíkurborg hefur samþykkt uppfærðar reglur um fjölda bíla- og hjólastæða við nýbyggingar og endurnýjun innan lóða. Viðmiðin eru hækkuð frá eldri reglum og eru kröfurnar rýmri en áður. Í greinargerð segir að markmið reglnanna sé meðal annars að „stuðla að hagkvæmri uppbyggingu bílastæða og að fjöldi stæða taki mið af raunverulegri þörf“. Bílastæðum við nýbyggingar getur samkvæmt þessu fjölgað en viðmið fyrir íbúðahúsnæði verður rýmkað um allt að 0,5 bílastæði á íbúð.

Uppfærslan byggir á samþykkt borgarstjórnar frá 4. mars 2025 og er framhald af reglum sem fyrst voru settar árið 2019 og endurskoðaðar síðast árið 2024. Borgarstjórn samþykkti uppfærðar reglur á fundi sínum þann 21. apríl síðastliðinn.

Svæðaskipting og forsendur

Reglurnar byggja áfram á svæðaskiptingu borgarinnar í tvö svæði:

  • Svæði I nær yfir miðkjarna, þéttingarsvæði, háskólasvæði og svæði á samgöngu- og þróunarásum. Þar er stefnt að breyttum ferðavenjum og minni eftirspurn eftir bílastæðum.
  • Svæði II nær til annarra hverfa innan þéttbýlismarka þar sem gert er ráð fyrir meiri bílastæðaþörf.

Viðmið um hjólastæði haldast óbreytt og eru skilgreind sem lágmörk. Áfram er lögð áhersla á öruggar langtímageymslur og aðgengi að skammtímastæðum við innganga.

Helstu breytingar 

Breytingarnar snúa eingöngu að viðmiðum og hámarki bílastæða við íbúðarhúsnæði. Viðmiðin eru hækkuð frá eldri reglum og eru kröfurnar rýmri en áður, sérstaklega á svæði II. Breytingin er mismunandi eftir stærð íbúða og getur numið allt að 0,5 stæðum til viðbótar við núverandi viðmið.

Í samanburði sem fylgir tillögunni kemur fram að heildarfjöldi bílastæða í dæmum um 100 íbúða uppbyggingu gæti aukist um:

  • 8–27% á svæði I miðað við eldri viðmið,
  • 44–47% á svæði II miðað við eldri viðmið.

Við mat á bílastæðum vegna uppbyggingar er gengið út frá fjölda bílastæða í samræmi við viðmið en með rökstuddum niðurstöðum úr samgöngumati geta stæði verið færri eða fleiri, en þó aldrei fleiri en skilgreint hámark.

Samgöngumat og sveigjanleiki

Reglurnar gera ráð fyrir að fjöldi bíla- og hjólastæða sé ávallt ákvarðaður út frá viðmiðunargildum. Ef uppbygging uppfyllir ákveðin skilyrði, til dæmis vegna stærðar, blandaðrar landnotkunar eða nálægðar við góðar almenningssamgöngur, skal framkvæma samgöngumat þar sem fjöldi stæða er endurmetinn.

Í skjalinu segir að tækifæri til að fækka bílastæðum séu helst á stærri byggingareitum eða hverfum, reitum með blandaða landnotkun, og svæðum í nágrenni við góðar almenningssamgöngur.

Reglurnar gilda um nýbyggingar og endurnýjun byggðar og skulu lagðar til grundvallar við gerð hverfis- og deiliskipulags og við umsóknir um byggingarleyfi.