Reykjavíkurborg semur um geðheilbrigðis- og sálfræðiþjónustu fyrir Vöggustofubörn Thorvaldsensfélagsins 1974-1979

Skýrsla um starfsemi vöggustofa í Reykjavík 1974-1979
Skýrsla um starfsemi vöggustofa í Reykjavík 1974-1979

Reykjavíkurborg hefur samið við Kvíðameðferðarstöðina, Sálfræðistofuna Höfðabakka og Domus Mentis Geðheilsustöð um þjónustu við einstaklinga sem voru vistaðir á Vöggustofu Thorvaldsensfélagsins á árunum 1974-1979. Þessi þjónusta hefst í dag föstudaginn 13. febrúar 2026 klukkan 10.00.

Þetta er ein af þeim aðgerðum sem borgarráð samþykkti 22. janúar sl. að fara í eftir útgáfu skýrslu um starfsemi Vöggustofu Thorvaldsensfélagsins í Reykjavík á árunum 1974-1979. Vöggustofubörn geta óskað eftir þjónustunni í gegnum símanúmerið 411-1400 hjá Reykjavíkurborg með því að láta vita að erindið snerti vöggustofur, eða í gegnum netfangið voggustofur@reykjavik.is sem starfsmaður Reykjavíkurborgar vaktar.

Þegar vistun á vöggustofu hefur verið staðfest mun starfsmaður Reykjavíkurborgar senda nauðsynlegar tengiliðaupplýsingar um viðkomandi til sálfræðistofu sem samið hefur verið við. Sálfræðistofan sér um öll samskipti eftir það. Í inntökuviðtali leggur stofan sjálf mat á þjónustuþörf hvers einstaklings og vísar í viðeigandi bráðaþjónustu eða aðra heilbrigðisþjónustu ef talin er þörf á slíku. Reykjavíkurborg greiðir fyrir allt að 10 sálfræðiviðtöl fyrir hvern einstakling.

Sálfræðistofan ábyrgist að veita þjónustuna á skilvirkan hátt og að viðkomandi einstaklingar fari framarlega á biðlista til að halda bið eftir þjónustu í algjöru lágmarki. Mælst er til þess að teymi sálfræðinga með  breiða þekkingu veiti þjónustuna til að tryggja að fólk hljóti viðeigandi þjónustu og að fyrrum vöggustofubörnum standi til boða að hitta sálfræðing af sama kyni ef þess er óskað. Gert er ráð fyrir að veitt sé meðferð sem byggir á gagnreyndum aðferðum og klínískum leiðbeiningum. 

Frekari upplýsingar eru veittar á www.reykjavik.is/voggustofunefnd.