Regína lýkur farsælum kennsluferli
Kveðjuathöfn var haldin í leikskólanum Sólborg þar sem hinn rómaði leikskólakennari Regína Rögnvaldsdóttir hætti störfum sem fastur starfsmaður eftir áratuga farsælt starf. Athöfnin kom Regínu í opna skjöldu og var bæði hlý og hátíðleg stund þar sem samstarfsfólk, börn og foreldrar þökkuðu henni fyrir ómetanlegt framlag.
Regína flutti þekkingu og reynslu í Sólborg
Regína hefur starfað í Sólborg frá því leikskólinn var stofnaður árið 1994 og hefur síðan þá verið ein af lykilstoðum starfsins. Hún kom til starfa með dýrmæta reynslu úr „Rauða húsinu“, leikskóla sem starfaði áður í tengslum við Döff-skólann við Hlíðaskóla og hét áður Heyrnleysingjaskólinn. Þegar Sólborg hóf starfsemi sína var ákveðið að færa starfsemi Rauða hússins yfir í nýja leikskólann og með því fluttist þekking, reynsla og sýn Regínu inn í Sólborg.
Þessi flutningur markaði upphaf að sérstöðu Sólborgar í málaflokki döff barna. Regína var þar í fararbroddi og mótaði í raun grunninn að því starfi sem skólinn er þekktur fyrir í dag. Samstarfsfólk hennar lýsir henni sem frumkvöðli þó að hún sjálf sé einstaklega hógvær og hafi ætíð gert lítið úr eigin hlut.
Ötull talsmaður döff barna
Á starfsferli sínum hefur Regína haft víðtæk áhrif langt út fyrir veggi Sólborgar. Hún hefur verið ötull talsmaður döff barna í leikskólum landsins og lagt sig fram um að efla þekkingu og skilning á þörfum þeirra. Hún hefur einnig haldið fjölmarga fyrirlestra um hljóðvist í leikskólum, sem hefur haft áhrif á starfshætti víða um land. Þannig má segja að hún hafi „sáð fræjum“ sem hafa vaxið og dafnað í leikskólastarfi um allt land.
Fræðslan sem hún hefur miðlað hefur verið bæði víðtæk og hagnýt og samstarfsfólk hennar segir að þekking hennar og innsýn sé einstök. „Fróðleikurinn spýtist út úr henni,“ segir Margrét Gígja Þórðardóttir leikskólastjóri og bætir við að það hafi verið einstakt tækifæri að starfa með henni.
Verður sárt saknað úr leikskólastarfinu
Fyrir störf sín hefur Regína meðal annars verið útnefnd heiðursfélagi í Félagi sérkennara, sem endurspeglar þá virðingu sem hún nýtur innan fagstéttarinnar. Mörg telja hana meðal fremstu leikskólakennara sem starfað hafa hér á landi.
Það er því ljóst að brotthvarf hennar frá daglegu starfi verður Sólborgu þungt í skauti. „Við eigum eftir að sakna hennar óendanlega mikið,“ segir Margrét Gígja þó jafnframt þó að hún muni ekki hverfa alfarið úr starfinu. Áform eru um að hún haldi áfram aðkomu að skólanum í hlutastarfi og miðli þannig áfram af reynslu sinni og þekkingu.
Kveðjustundin í morgun var tilfinningarík þar sem farið var lauslega yfir farsælan feril og þau áhrif sem Regína hefur haft á ótal líf. Með starfi sínu hefur hún ekki aðeins mótað Sólborg heldur lagt sitt af mörkum til að gera leikskólastarf á Íslandi betra og fjölbreyttara.