Óvenju margar gulendur á Reykjavíkurtjörn
Óvenju margar gulendur hafa sést á Reykjavíkurtjörn undanfarna daga. Fuglalíf Tjarnarinnar hefur verið vaktað í áratugi af vísindamönnum en slíkur fjöldi hefur ekki áður sést í fuglatalningum á svæðinu. Þær hafa flestar sést um 25 talsins á Vatnsmýrarsvæðinu á síðustu vikum.
Gulendur flokkast sem fiskiendur en þær veiða sér gjarnan hornsíli og seiði laxfiska til matar. Þær eru áberandi stórar, vega um 1,5 kg og eru er stærstu ferskvatnsendur íslensku fuglafánunar.
Gulendur eru á válista og flokkuð sem tegund í nokkurri hættu. Yfir vetrartímann nær tegundin alþjóðlegum verndarviðmiðum úti fyrir mynni Grafar- og Elliðavogs en nokkur hluti stofnsins hefur vetursetu umhverfis höfuðborgarsvæðið.
Nú er því upplagt að gera sér ferð að Tjörninni og njóta þess að fylgjast með þessum fallegu fuglum í návígi. Þær halda sig mest á syðri hluta Tjarnarinnar, skammt frá brúnni yfir Skothúsveg.