Öryggisvika Reykjavíkurborgar 2026
Öryggisvika Reykjavíkurborgar fór fram á dögunum og náði hápunkti sínum með formlegri opnun á nýju atvikaskráningakerfi. Þetta er þriðja árið í röð sem borgin stendur fyrir þessu átaki og lögð var áhersla á það sem við getum gert til að tryggja öryggi og velferð starfsfólks og þjónustunotenda, svo öll komist heil heim í lok dags.
Dagskrá öryggisvikunnar, sem stóð yfir 26.- 30. janúar, endurspeglaði þau fjölbreyttu störf sem starfsfólk borgarinnar sinnir. Ráðstefna var haldin fyrir öryggisverði og öryggistrúnaðarmenn þar sem sérfræðingar í vinnuvernd fluttu fjölbreytt erindi um öryggi og heilbrigði á vinnustöðum með áherslu á atvikaskráningar. Þorsteinn Gunnarsson borgarritari setti ráðstefnuna en hann hefur mikla reynslu af uppbyggingu vinnuverndar hjá hinu opinbera.
Námskeið, fyrirlestrar og fræðsla fór einnig fram á fagsviðum miðað við áherslur í starfsumhverfi hvers sviðs. Þar má nefna námskeið í skyndihjálp, slysavörnum barna og rýmingu húsnæðis. Eins má nefna fyrirlestra um örugg viðtöl, spennulækkandi aðferðafræði fyrir framlínufólk og fagleg samskipti ásamt ýmsum öðrum uppákomum.
Nýtt atvikaskráningarkerfi
Segja má að hápunktur vikunnar hafi verið formleg opnun á nýju atvikaskráningarkerfi. Kerfið, sem kallast ASKUR, hefur þann tilgang að auka öryggi starfsfólks og þjónustunotenda og gefur borginni tækifæri til að vinna með væg atvik áður en þau verða alvarlegri.
ASKUR safnar mikilvægum upplýsingum svo hægt sé að læra af atvikum, gera úrbætur og koma þannig í veg fyrir að fleiri atvik eða slys komi upp. Lögð er áhersla á að skrá öll atvik sem varða starfsfólk en einnig sem varða þjónustunotendur; til dæmis sundlaugagesti, nemendur í skólum, íbúa í heimaþjónustu og fleira.
,,Þetta er stórt skref í umbótavegferð okkar í vinnuvernd,“ segir Ásta Bjarnadóttir, skrifstofustjóri starfsþróunar og starfsumhverfis hjá Reykjavíkurborg. “Þetta hjálpar okkur að gera Reykjavíkurborg að öruggari stað til að starfa hjá og búa í, því ef það sem þarf að bæta er ekki skráð niður, er ekki vitað hvað þarf að laga.“
Frá ráðstefnu í öryggisvikunni.