Opnun Sundhallar Reykjavíkur frestast um nokkra daga
Viðhaldsvinna sem hefur staðið yfir í Sundhöll Reykjavíkur hefur gengið vel en þó hafa komið upp nokkur ófyrirséð atriði sem kallað hafa á umfangsmeiri framkvæmdir í búningsklefum en upphaflega var gert ráð fyrir.
Af þeim sökum verður ekki hægt að opna Sundhöllina aftur mánudaginn 22. júní líkt og áður hafði verið auglýst.
Allt kapp er lagt á að ljúka þeim framkvæmdum sem eftir standa og stefnt er að opnun seinni partinn í næstu viku. Nánari upplýsingar verða birtar um leið og sú tímasetning liggur fyrir.
Við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kanna að valda og þökkum gestum fyrir þolinmæði og skilning á meðan á viðhaldsvinnu stendur.
Við bendum jafnframt á að árskort og aðrar áskriftir gilda í allar Sundlaugar Reykjavíkur. Nánari upplýsingar um sundlaugar og opnunartíma má nálgast á https://reykjavik.is/sundlaugar