Öflug dagskrá um inngildandi leikskólastarf á ráðstefnu leikskólafólks

Myndir frá leikskólaráðstefnunni 2026

Ráðstefna um inngildandi leikskólastarf fór fram á degi leikskólans þann 6. febrúar þar sem fræðafólk, leikskólastjórnendur og starfsfólk kynntu nýjustu rannsóknir og þróunarverkefni á sviði félagsfærni, fjöltyngis, leikja og málþroska í leikskólum Reykjavíkur.

Ætla má að um tvö þúsund hafi tekið þátt, hátt í eitt þúsund mættu í Háskólabíó og um eitt þúsund fylgdust með í streymi. Neðst í fréttinni má sjá upptöku af ráðstefnunni.

Vessela S. Dukova leikskólastjóri á Jörfa stýrði ráðstefnunni. Dagskráin hófst með söng og gleði undir stjórn Hörpu Þorvaldsdóttur. Ólafur Brynjar Bjarkason bauð svo gesti velkomna og setti ráðstefnuna og Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri ávarpaði gesti þar sem hún talaði um mikilvægi leikskólastarfsins og þess að bæta starfsaðstæður á þessum mikilvægu vinnustöðum.

Samfélag sem styðji við virk samskipti

Fyrsta erindið hélt Dr. Fríðu Bjarney Jónsdóttir, samhæfingarstjóra MEMM í Mennta- og barnamálaráðuneytinu, sem fjallaði um mikilvægi þess að leikskólinn sé samfélag sem styður við virk samskipti allra barna og foreldra þeirra. Hún lagði áherslu á að vel skipulögð, inngildandi námsrými efli bæði íslenskt mál og heimatungumál barna og stuðli að jákvæðri sjálfsmynd fjöltyngdra barna.

Virk þátttaka í leik barna er mikilvæg

Starfsfólk leikskólans Ösp – Halldóra Sigtryggsdóttir leikskólastjóri, Anna Sendrowska og Dusanka Mackic‑Pataki – kynntu starfendarannsókn um þátttöku barna í leik í fjölmenningarlegu umhverfi. Þar kom fram að virk þátttaka starfsfólks í leik barna stuðli að auknum orðaforða, innihaldsríkum samskiptum og jöfnum tækifærum allra barna í leikskólastarfinu.

Myndir frá leikskólaráðstefnunni 2026
Halldóra, Anna og Dusanka frá leikskólanum Ösp sögðu frá starfinu í Ösp þar sem mikill meirihluti barna er með fjölbreyttan tungumála- og menningarbakgrunn.

Viðurkenning á fjölbreyttri reynslu getur styrkt tengsl

Dr. Björn Rúnar Egilsson, lektor við Menntavísindasvið HÍ, fjallaði um rannsókn á viðhorfum foreldra og leikskólakennara til fullgildis fjölskyldna í leikskólasamfélagi. Hann greindi frá því hvernig dagleg samskipti, samfélagsleg þátttaka og viðurkenning á fjölbreyttri reynslu foreldra geti styrkt tengsl heimila og leikskóla.

Lagatextar og tónlist til að efla málskilning

Guðmundur Sigurþórsson, verkefnastjóri tónlistar í Sunnuási, kynnti verkefnið „Tölum um texta“, þar sem lagatextar og tónlist eru notuð markvisst til að efla málskilning, hljóðkerfisvitund og áhuga barna á tungumáli og sköpun. Þá ræddi Erna Aðalsteinsdóttir, deildarstjóri í leikskólanum Gullborg, „töfra leikskólans“ – gleðina, sköpunarkraftinn og mikilvægi þess að starfsfólk sé virkt í leik og daglegum samskiptum.

Þau sem stóðu að ráðstefnunni voru fulltrúar frá skóla- og frístundasviði, Menntavísindasviði Háskóla Íslands, Félagi leikskólakennara og Félagi stjórnenda leikskóla.