Ocean Vuong sérstakur gestur á Reykjavík Poetics

Rithöfundurinn Ocean Vuong Gioncarlo Valentine
Rithöfundurinn Ocean Vuong

Þann 14. október fer 26. viðburðurinn í viðburðaröðinni Reykjavík Poetics fram í Mengi, Óðinsgötu 2. Sérstakur gestur verður eitt þekktasta skáld og rithöfundur sinnar kynslóðar á alþjóðavettvangi, Ocean Voung.

Reykjavík Poetics er samfélagsmiðuð listamannasamsteypa sem leitast við að skapa vettvang fyrir fjöltyngda þátttöku innlendra og erlendra rithöfunda með það að markmiði að gera bókmenntir aðgengilegar, án aðgreiningar og efla lifandi bókmenntasamfélag þar sem fjölbreyttar raddir fá að heyrast.

Að þessu sinni hefur Ocean Vuong, víetnamsk-bandarískur rithöfundur, umsjón með dagskrá kvöldsins í Mengi. Einnig koma fram Þuríður Jónsdóttir, Atli Ingólfsson, Snædís Björnsdóttir, Ólöf Arnalds og Jeff Thompson. 

Ocean Vuong 

Ocean Vuong hefur á síðasta áratug skipað sér í fremstu röð bandarískra samtímabókmennta, bæði sem ljóðskáld og skáldsagnahöfundur. 

Vuong vakti alþjóðlega athygli með ljóðabókinni Night Sky with Exit Wounds (2016), sem hlaut meðal annars T. S. Eliot-verðlaunin, og skáldsögunni On Earth We’re Briefly Gorgeous (2019), sem varð metsölubók og vakti mikla athygli gagnrýnenda. Hann hefur hlotið fjölda viðurkenninga fyrir verk sín, þar á meðal MacArthur Fellowship, og starfar sem prófessor í skáldskap og ljóðlist við New York University. Nýjasta skáldsaga hans, The Emperor of Gladness, kom út árið 2025.

Verk Vuong einkennast af sterkri ljóðrænni nálgun og liggja gjarnan á mörkum ljóðlistar og prósa. Þar eru meðal annars tekin fyrir minni, missir, fjölskylda, tungumál, fólksflutningar, stétt og sjálfsmynd. Hann hefur jafnframt lagt ríka áherslu á munnlega vídd ljóðlistar og samband texta, raddar og lifandi flutnings.

Tengsl við Reykjavík og íslenskt menningarlíf

Vuong hefur þegar sterk tengsl við Reykjavík. Hann dvaldi hér meðan hann vann að On Earth We’re Briefly Gorgeous og hefur sjálfur lýst því að hann hafi lokið við skáldsöguna í Perlunni. Reykjavík tengist því með beinum hætti einu af lykilverkum hans. Hann á jafnframt langt listrænt og persónulegt samtal við Björk. Þau hafa ítrekað rætt opinberlega saman um bókmenntir, tónlist, sorg, sköpun og listrænt ferli. Samtöl þeirra hafa meðal annars birst í AnOther Magazine og BOMB Magazine og endurspegla þá þverfaglegu nálgun sem einkennir verk beggja.

Vuong hefur einnig sýnt sérstakan áhuga á íslenskum og norrænum bókmenntum. Hann hefur rætt Halldór Laxness í samhengi við norræna höfunda sem hafa leitað nýrra leiða í frásagnarformi og fjallað um íslensku handritin og mikilvægi tungumáls og frásagna fyrir menningarlegt minni og sjálfsmynd.

Vuong og lifandi ljóðlist

Vuong hefur sjálfur talað um ljóðaupplestur sem sérstakt form sviðslistar. Í nálgun hans er upplestur ekki eingöngu miðlun texta heldur samspil texta, raddar, líkama, rýmis og áheyrenda. Hann hefur jafnframt lýst ljóðlist sem upplifun sem þurfi ekki alltaf að „leysa“ eða túlka með hefðbundnum hætti, heldur sem andrúmslofti sem áhorfandi eða lesandi gengur inn í. Sú nálgun á vel við þá hugmyndafræði sem RVK Poetics hefur þróað, þar sem áhersla er lögð á ljóðið sem lifandi listform og tengsl þess við flutning, tónlist og aðrar listgreinar.

Þátttaka í RVK Poetics

Þátttaka Ocean Vuong í RVK Poetics er verulegur fengur fyrir verkefnið og fyrir Reykjavík UNESCO Bókmenntaborg. RVK Poetics hefur verið byggt upp sem vettvangur fyrir samtímaljóðlist þar sem lögð er áhersla á lifandi flutning, alþjóðleg tengsl og samtal milli ljóðlistar og annarra listforma. Vuong fellur sérstaklega vel að þeirri áherslu, bæði vegna stöðu sinnar sem ljóðskálds og vegna þess hvernig hann sjálfur nálgast flutning og þverfaglega listsköpun. 

Að fá höfund af þessari alþjóðlegu stærðargráðu til þátttöku í reglulegri dagskrá Bókmenntaborgarinnar er jafnframt mikil viðurkenning fyrir það starf sem hefur verið byggt upp í kringum RVK Poetics. Hér er ekki um hefðbundna gestakomu að ræða heldur þátttöku höfundar sem hefur bein tengsl við Reykjavík, íslenskt menningarlíf og íslenskar bókmenntir. Þátttaka Vuong styrkir því stöðu RVK Poetics sem alþjóðlegs vettvangs fyrir samtímaljóðlist og sýnir jafnframt getu Reykjavík UNESCO Bókmenntaborgar til að skapa dagskrá sem höfðar til höfunda í fremstu röð alþjóðlegra bókmennta.