Nýr meirihluti í borgarstjórn kynntur í Viðey

Nýr borgarstjórnarmeirihluti í Viðey
Nýr borgarstjórnarmeirihluti í Viðey

Nýr borgarstjórnarmeirihluti Sjálfstæðisflokksins, Framsóknarflokksins og Viðreisnar var kynntur í Viðey í morgun. 

Hildur Björnsdóttir Sjálfstæðisflokki, Einar Þorsteinsson Framsóknarflokki og Björg Magnúsdóttir Viðreisn kynntu nýjan meirihluta fyrir utan Viðeyjarstofu klukkan 11.10 í dag. Oddvitar sögðu viðræður hafa gengið vel og góðan anda ríkja í hópnum sem mun taka formlega við á borgarstjórnarfundi 2. júní næstkomandi.

Hildur Björnsdóttir verður borgarstjóri, Einar Þorsteinsson verður formaður borgarráðs til eins árs og Björg Magnúsdóttir verður forseti borgarstjórnar. Björg og Einar munu svo hafa vistaskipti þann 1. júní 2027. Hildur lagði jafnframt til að Ari Edwald, formaður Miðflokksins, yrði stjórnarformaður Orkuveitunnar.

Alls eru 16 atriði tilgreind í samstarssáttmála flokkanna þriggja sem kynnt voru í morgun: 

  • Við ætlum að auglýsa eftir vinnustöðum til samstarfs um rekstur leikskóla eða daggæslu.
  • Við ætlum að setja okkur mælanleg markmið um aukinn árangur í skólastarfi og stefna að skólakerfi í fremstu röð.
  • Við ætlum að hefja samtal við ríkisstjórnina og nágrannasveitarfélög um endurskoðun samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins, fjármögnun hans og framkvæmdahraða.
  • Við ætlum að endurskoða fyrirhugað deiliskipulag við Suðurlandsbraut í samstarfi við hagaðila.
  • Við ætlum að endurskoða breytingar á gatnamótum við Höfðabakka. 
  • Við ætlum að stytta gjaldskyldutíma á bílastæðum í miðborginni í samvinnu við íbúa og fyrirtæki. 
  • Við ætlum að breyta fyrirliggjandi skipulagi nýrra hverfa í Keldnalandi og Úlfarsárdal og hefja skipulag nýrra framtíðarhverfa á Kjalarnesi, Geldingarnesi, Gufunesi og Granda. 
  • Við ætlum að lengja opnunartíma sundlauga til kl. 22.
  • Við ætlum að ráðast í hagræðingar og stjórnkerfisbreytingar í borgarkerfinu með það að markmiði að auka skilvirkni og draga úr sóun. 
  • Við ætlum að bjóða út sorphirðu í einu hverfi borgarinnar í tilraunaskyni svo undirbúa megi rekstrarútboð á allri sorphirðu borgarinnar. 
  • Við ætlum að kortleggja aðstöðumál íþróttafélaga og fjárframlög til þeirra svo forgangsraða megi verkefnum og tryggja jafnræði milli félaga.
  • Við ætlum að efla stoðþjónustu við börn inni í skólum borgarinnar.
  • Við ætlum að tryggja að öll börn geti tekið þátt í skipulögðu íþrótta- og tómstundastarfi.
  • Við ætlum að bjóða tekjulágu eldra fólki 60.000 kr. árlegan frístundastyrk.
  • Við ætlum að lækka fasteignaskatta á íbúðarhúsnæði og atvinnuhúsnæði.
  • Við ætlum að standa vörð um og efla græn svæði borgarinnar og ráðast í skógræktarátak.Málefnasamningur flokkanna þriggja verður með öðru sniði en áður. 

Hildur sagði að samstarfssáttmálinn í heild sinni yrði birtur á verkefnalista þar sem aðgerðir yrðu tímasettar og borgarbúar gætu fylgst með á vefsíðunni verkefnalisti.is. Vefsíðan verður birt þann 2. júní næstkomandi þegar ný borgarstjórn tekur við.