Nýjar reglur um upplýsinga- og skjalastjórn Reykjavíkurborgar samþykktar

Róbert Reynisson
Ráðhúsið, loftmynd, tekin frá Þingholtum. Tjörnin lögð ís og snjó.

Nýjar reglur um upplýsinga- og skjalastjórn Reykjavíkurborgar, sem borgarráð samþykkti nýlega, setja skýran og samræmdan ramma um skjalastjórn og meðferð gagna og upplýsinga í starfsemi Reykjavíkurborgar.

Markmið reglnanna er að tryggja örugga, skipulega og ábyrga meðferð og vörslu skjala og upplýsinga hjá borginni. Reglurnar styðja við góða stjórnsýslu, auka gagnsæi og tryggja rekjanleika í málsmeðferð, jafnframt því að skapa sameiginlegt verklag þvert á svið og starfseiningar borgarinnar.

Nýju skjalareglurnar skýra ábyrgð og hlutverk skjalastjórnar og setja viðmið um skráningu, varðveislu og aðgengi að skjölum. Þær styðja jafnframt við að upplýsingar séu aðgengilegar þegar þeirra er þörf, bæði fyrir starfsemi borgarinnar sjálfrar sem og í samskiptum við íbúa og aðra hagaðila. Reglurnar eru sömuleiðis mikilvægur þáttur í því að tryggja að Reykjavíkurborg uppfylli lagalegar kröfur um skjalavörslu og meðferð opinberra gagna.

Samþykkt reglna um upplýsinga- og skjalastjórn er liður í áframhaldandi vinnu Reykjavíkurborgar við að styrkja innviði stjórnsýslunnar, bæta verkferla og tryggja að upplýsingar og skjöl séu meðhöndluð með samræmdum og faglegum hætti í allri starfsemi borgarinnar.