Netárás á tölvukerfi Reykjavíkurborgar veldur röskun á þjónustu
Reykjavíkurborg varð í dag fyrir netárás á hluta tölvukerfa sinna. Um leið og árásin uppgötvaðist var gripið til öryggisráðstafana til að verja kerfi og gögn borgarinnar. Meðal annars var ákveðið að taka fjölda rafrænna þjónustukerfa tímabundið úr sambandi.
Sérfræðingar netöryggisfyrirtækisins Syndis og netöryggissveitarinnar CERT-IS vinna nú ásamt starfsfólki borgarinnar að því að greina umfang árásarinnar, tryggja öryggi kerfanna og koma þjónustu aftur í eðlilegt horf eins fljótt og kostur er.
Vegna þessara ráðstafana má gera ráð fyrir röskun á rafrænni þjónustu borgarinnar næstu daga. Sum þjónustukerfi kunna að verða óaðgengileg, að öllu leyti eða að hluta, meðan unnið er að því að tryggja öryggi þeirra og virkni.
Nánari upplýsingar verða veittar eftir því sem fram vindur.