Myndir valdar fyrir myndlistarsamkeppni friðarborgarstjóra
Friður er börnum og öðrum íbúum heimsins mikið umhugsunarefni. Frá árinu 2023 hafa reykvísk grunnskólabörn fengið tækifæri til að láta rödd sína heyrast með þátttöku í alþjóðlegri myndlistarsamkeppni aðildarborga friðarborgarstjóra (Mayors for Peace).
Viðfangsefni samkeppninnar er „Hvað er friður fyrir mér?“ og er markmið hennar að hvetja börn og ungmenni til að ígrunda mikilvægi friðar og tjá hugmyndir sínar með skapandi hætti. Þátttakendur eru á reykvísk börn á aldrinum 6–15 ára.
Á alþjóðlegri friðarráðstefnu í Silfurbergi í Hörpu 12. október voru kynnt þau verk sem valin hafa verið til að vera framlag Reykjavíkurborgar í alþjóðlegu samkeppnina en alls bárust 54 myndverk frá tveimur grunnskólum í Reykjavík.
Borgarstjóri veitti viðurkenningar fyrir valin verk og munu sigurmyndir Reykjavíkurborgar fara áfram í alþjóðlega myndlistarsamkeppni Mayors for Peace.
Valin verk í aldursflokki 6–10 ára
- Amelia Salazar Vasques, 2. bekk, Húsaskóli
- Arney Lilja Hallsdóttir, 3. bekk, Húsaskóli
- Eivör Ása Káradóttir, 1. bekk, Húsaskóli
- Halldór Máni Stefánsson, 4. bekk, Húsaskóli
- Konstantina Adusei, 1. bekk, Húsaskóli
Valin verk í aldursflokki 11–15 ára
- Ágústa Indriðadóttir, 7. bekk, Álftamýrarskóli
- Kári Hilmarsson, 7. bekk, Álftamýrarskóli
- Matthildur Saga Ólafsdóttir, 7. bekk, Álftamýrarskóli
- Áslaug Nanna Ragnarsdóttir, 7. bekk, Álftamýrarskóli
- Bryndís Aðalbjörg Örvarsdóttir, 7. bekk, Álftamýrarskóli
Myndir barnanna endurspegla fjölbreyttar hugmyndir um frið, samkennd, vináttu og virðingu. Með þátttöku sinni minna þau á mikilvægi þess að hlúa að friði og mannlegum tengslum á tímum þar sem slík gildi skipta miklu máli.