Melaskóli fagnaði 80 ára afmæli

Harpa Reynisdóttir skólastjóri flytur ræðu.

Mikil hátíðarstemning ríkti í Melaskóla þegar skólasamfélagið, fyrrverandi nemendur, starfsfólk og velunnarar komu saman til að fagna 80 ára afmæli skólans í gær. Afmælið markar merk tímamót í sögu eins elsta og rótgrónasta grunnskóla landsins, þar sem þúsundir barna hafa stundað nám frá því kennsla hófst 5. október 1946.

Mynd af stúlku leika á klarinett í sal skólans.
Nemendur í skólahljómsveit Vestur- og Miðbæjar flutt tónlist fyrir gesti.

Eitt sinn voru nærri 1500 nemendur í skólanum

Í hátíðarræðu sinni rifjaði Harpa Reynisdóttir skólastjóri Melaskóla upp sögu skólans en fyrsta skólaárið voru um 850 nemendur í skólanum og 26 kennarar. Nemendafjöldinn náði hámarki um miðjan sjötta áratuginn þegar skólinn var þrísetinn með tæplega 1.500 nemendur. Í dag eru nemendur 552 talsins og starfsmenn 72.

Mynd af Arndísi Steinþórsdóttur, Hörpu Reynisdóttur, Guðrúnu Björk Freysteinsdóttur og Steini Jóhannssyni.
Arndís Steinþórsdóttir, skrifstofustjóri grunnskóla, Harpa Reynisdóttir, skólastjóri Melaskóla, Guðrún Björk Freysteinsdóttir, deildarstjóri grunnskóla, og Steinn Jóhannsson, sviðsstjóri skóla- og frístundasviðs.

Merkilegt hús prýtt listaverkum

Skólastjóri lýsti Melaskóla sem „fallegasta skóla landsins“ og benti á hið sögulega húsnæði sem Einar Sveinsson teiknaði ásamt listaverkum Barböru Árnason og Ásmundar Sveinssonar sem prýða skólann. Hún sagði sögu skólans nánast sitja í veggjunum og minnti á að víða mætti enn sjá merki fortíðarinnar, meðal annars í upprunalegu gólfefni Skálans þar sem dansleikir voru haldnir á árum áður.

Þrátt fyrir miklar samfélagsbreytingar, tækniframfarir og breytt hlutverk skóla undanfarna áratugi lagði skólastjóri áherslu á að kjarni góðs skólastarfs hefði ekki breyst. Harpa minnti á að skóli yrði ekki til úr steypu og veggjum heldur fólkinu sem þar starfar og lærir og þakkaði hún starfsfólki, nemendum, foreldrum og velunnurum fyrir framlag sitt til skólasamfélagsins í gegnum tíðina.

Harpa tekur á móti bókagjörf úr hendi Þórarins Eldjárns.
Þórarinn Eldjárn færir skólanum bækur að gjöf.

Gjafir frá fyrrverandi nemendum og velunnurum skólans

Sérstakur gestur hátíðarinnar var rithöfundurinn og fyrrverandi nemandinn Þórarinn Eldjárn, sem hóf skólagöngu sína í Melaskóla fyrir sjötíu árum. Í ávarpi sínu rifjaði hann upp minningar frá skólaárunum og tengsl sín við skólann. Í tilefni af afmælinu færði hann skólanum veglega bókagjöf og gaf fjórar bækur eftir sig, átta eintök af hverri, eða eitt eintak fyrir hvern áratug í sögu skólans. Gjöfin mun nýtast nemendum og starfsfólki vel og er fallegt dæmi um þann hlýhug sem fyrrverandi nemendur bera til skólans.

Þórarinn var ekki eini velunnari skólans sem færði afmælisbarninu gjöf. Annar fyrrverandi nemandi, Guðni Harðarson, gaf Melaskóla 20 málverk sem nú prýða veggi skólans. Verkin eru innblásin af íslenskum þjóðsögum og setja skemmtilegan svip á skólaumhverfið. Báðar gjafirnar endurspegla sterk tengsl fyrrverandi nemenda við Melaskóla og þann metnað og væntumþykju sem margir bera til skólans, jafnvel löngu eftir að skólagöngu þeirra lýkur.

Mynd af málverkum Guðna Harðarsonar.
Hér gefur að líta þrjú af verkum Guðna Harðarsonar sem hann gaf skólanum.