Lokun vegna endurnýjunar umferðarljósa á Háaleitisbraut/Smáagerði
Vegna endurnýjunar umferðarljósa á Háaleitisbraut/Smáagerði verður Háleitisbraut til norðurs lokað rétt norðan við gatnamótin og verður hjáleið um Smáagerði.
Háaleitisbraut til suðurs verður haldið opinni, en annarri akreininni verður lokað í einu og ökumenn komast því fram hjá framkvæmdasvæðinu.
Lokunin hefst klukkan 9:00 á morgun miðvikudaginn 23. september og er gert ráð fyrir að opnað verði fyrir umferð ökutækja seinnipartinn sama dag.
Beðist er velvirðingar á truflunum sem þetta kann að valda. Þökkum þolinmæðina.