Litrík dagskrá á Borgarsögusafni
Í tilefni af Alþjóðlegum degi gegn fordómum í garð hinsegin fólks þann 17. maí og Alþjóðlega safnadeginum 18. maí verður litrík dagskrá á Borgarsögusafni Reykjavíkur.
Sunnudaginn 17. maí er Alþjóðlegur dagur gegn fordómum í garð hinsegin fólks, einnig nefndur IDAHOBIT (International Day Against Homophobia, Biphobia, Intersex Discrimination and Transphobia). Dagurinn hefur verið haldinn hátíðlegur frá árinu 2004 en þann 17. maí árið 1990 fjarlægði Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin samkynhneigð af lista sínum yfir geðsjúkdóma. Árið 2019 færðust jafnframt málefni trans fólks úr flokkun geðsjúkdóma yfir í kafla um kynverund og heilsu.
Í tilefni dagsins og Alþjóðlega safnadagsins býður Borgarsögusafn Reykjavíkur gestum að taka þátt í fjölbreyttri og litríkri dagskrá á söfnum sínum um helgina. Ókeypis verður inn á viðburðina og öll hjartanlega velkomin.
Í Árbæjarsafn verður boðið upp á tvo dagskrárliði sunnudaginn 17. maí.
Fánasmiðja á Alþjóðlegum degi gegn fordómum í garð hinsegin fólks kl. 13:00-15:00
Opin fánasmiðja þar sem gestir á öllum aldri geta búið til eigin fána sem endurspegla hugmyndir, tilfinningar og fjölbreytileika. Á staðnum verða pappír, litir, lím og prik og ef veður leyfir verður hægt að flagga fánunum á torgi safnsins.
„Hinsegin fánasaga“ – uppistand með Sindra Sparkle kl. 15:00-16:00
Sindri „Sparkle“ Freyja er grínisti, rithöfundur, leikkona, grafískur hönnuður og margt fleira. Undanfarin ár hefur hán byggt feril sinn upp á uppistands- og dragsenum Reykjavíkur. Þrátt fyrir það er hán líklega enn þekktast fyrir að hafa birst nakið á sjónvarpsskjám þjóðarinnar fyrir nokkrum árum.
Hán er jafnframt einn helsti sérfræðingur heims í sögu hinsegin fána og hefur ferðast með sýningar sínar víða erlendis. Sindri „Sparkle“ Freyja hefur hlotið fjölda viðurkenninga fyrir verk sín, meðal annars Nordic Fringe Network-verðlaunin frá NFN og Rising Star-verðlaunin frá Reykjavík Fringe Festival.
„Stolt siglir fleyið mitt“ – regnbogasmiðja í Sjóminjasafni Reykjavíkur
Á Sjóminjasafninu í Reykjavík verður opin regnbogasmiðja dagana 16.–17. maí frá klukkan 10–17 undir yfirskriftinni Stolt siglir fleyið mitt. Þar geta gestir föndrað meðal annars regnbogafána eða skrifað skilaboð sem hengd verða á skipið RE Stolt í Bryggjusal safnsins. Markmið smiðjunnar er að skapa litrík og jákvæð skilaboð um fjölbreytileika, sýnileika og samstöðu.
Alþjóðlegi safnadagurinn - Frítt inn!
Þann 18. maí verður Alþjóðlegi safnadagurinn 2026 haldinn hátíðlegur undir yfirskriftinni „Söfn sem sameiningarafl í sundruðum heimi“. Frítt er inn á alla sýningarstaði Borgarsögusafns Reykjavíkur í tilefni dagsins!
Borgarsögusafn Reykjavíkur hlaut regnbogavottun árið 2022.