Listahátíð í Reykjavík sett á morgun með glæsilegri dagskrá

Frá setningu Listahátíðar 2024. Róbert Reynisson
Frá setningu Listahátíðar 2024. Ruslaskrímsli við lestina á hafnarbakkanum.

Listahátíð í Reykjavík verður sett í Listasafni Reykjavíkur á morgun, laugardaginn 30. maí, klukkan 14. Framundan er spennandi dagskrá og stendur hátíðin til 14. júní.

Hátíðin, sem fer fram annað hvert ár, er nú haldin í 35. sinn. Listahátíð er vettvangur fyrir listsköpun í hæsta gæðaflokki frá öllum heimshornum en á líka í kröftugu og lifandi sambandi við almenning í landinu og leitast við að tendra áhuga sem flestra til að taka þátt og njóta lista á eigin forsendum. Listahátíð fagnar fjölbreytileika mannlífsins og setur aðgengi og virðingu fyrir umhverfinu í forgang. Við verkefnaval hefur hátíðin faglegan metnað, kjark, lífsgleði og stórhug að leiðarljósi.

Frá setningu Listahátíðar 2024. Fólk dansar í Hafnarhúsi og margmenni fylgist með.
Frá setningu Listahátíðar 2024.

Opnunardagurinn á morgun verður stútfullur af spennandi og fjölbreyttum viðburðum og mun Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri setja hátíðina. Opnunarhátíðin hefst í Listasafni Reykjavíkur, Hafnarhúsi, þar sem boðið verður upp á brot úr nokkrum viðburðum hátíðarinnar, ávörp og léttar veitingar. Samhliða verður opnuð yfirlitssýning á verkum þýsku listakonunnar Karin Sander. Í kjölfarið leiða Skólahljómsveitir Reykjavíkur borgarbúa að Hörputorgi þar sem frumflutningur á tónverkinu Loftvægi eftir Samúel Jón Samúelsson fer fram, en í verkinu sameinast skólahljómsveitirnar fjórar, hátt í 600 ungmenni.

Frumsýning á loftfimleika-dansverkinu The Air Between Us hefst klukkan 15:30 á Hörputorgi og verður sýnt aftur klukkan 17. Sinfóníuhljómsveit Íslands flytur eitt stærsta sinfóníska verk sögunnar, áttundu sinfóníu Mahlers, á tónleikum klukkan 17 og á sama tíma kynnir Fischersund ilmheim hátíðarinnar í gróðurhúsinu á Lækjartorgi. Sýningar James Merry og Bjarkar Guðmundsdóttur verða opnaðar í Listasafni Íslands klukkan 18 og svo er tilvalið að enda daginn í opnunarpartýi Klúbbs Listahátíðar í Iðnó þar sem danssýningin Move with Pride fer fram klukkan 21:00.

Verið hjartanlega velkomin á Listahátíð í Reykjavík 2026!

Frá setningu Listahátíðar 2024. Þrjár manneskjur á sviði að flytja tónlist, söngur, fiðla og harmonika í miðjunni. Höfuðskraut á þeim.
Frá setningu Listahátíðar 2024.