Kvennaklefi Sundhallar Reykjavíkur opnar á ný – starfsemin færist í hefðbundið horf
Framkvæmdum við kvennaklefann í Sundhöll Reykjavíkur er nú lokið og var hann opnaður aftur í dag eftir miklar endurbætur. Með opnuninni færist starfsemi Sundhallarinnar aftur í hefðbundið horf.
Framkvæmdir við búningsklefa kvenna og karla í Sundhöll Reykjavíkur hafa staðið yfir frá því í sumar og reynst umfangsmeiri en upphaflega var gert ráð fyrir. Vegna þeirra hefur þurft að takmarka fjölda gesta í lauginni, og frá því að skólasund hófst í ágúst hefur einnig þurft að skerða opnunartíma hennar á virkum dögum.
Nú verða þessar takmarkanir úr sögunni og gestir geta aftur sótt Sundhöllina á hefðbundnum opnunartíma og án sérstakra fjöldatakmarkana.
Útiklefarnir aftur í hefðbundna notkun
Með opnun kvennaklefans geta konur aftur nýtt búningsaðstöðu sína innandyra og útiklefarnir tveir, sem tímabundið hafa verið nýttir sem kvennaklefar, verða aftur aðgengilegir bæði körlum og konum, hvorum í sínum klefa.
Karlar nýta áfram gamla búningsklefann á neðri hæð
Framkvæmdir við karlaklefann standa enn yfir og er stefnt að opnun hans snemma á nýju ári. Þangað til munu karlar áfram nýta gamla búningsklefann á neðri hæð Sundhallarinnar, sem var endurgerður í fyrri framkvæmdum og býður upp á góða aðstöðu.
Reykjavíkurborg þakkar gestum Sundhallarinnar fyrir sýnda þolinmæði og skilning á meðan framkvæmdum hefur staðið og býður alla hjartanlega velkomna í Sundhöll Reykjavíkur.