Kosið utan kjörfundar í Kringlunni
Nú geta kjósendur kosið utankjöfundar í verslunarmiðstöðinni Kringlunni.
Frá og með mánudeginum 17. ágúst opnaði aðstaða þar sem kjósendur geta kosið utankjörfundar í Kringlunni vegna þjóðaratkvæðagreiðslu sem fram fer 29. ágúst 2026. Atkvæðagreiðslan fer fram á jarðhæð Kringlunnar og er staðsett til móts við verslunina Hrím og við hlið verslunarinnar Kúnígúnd.
Opnunartími:
- Virka daga 17.–28. ágúst kl. 12:00–18:30
- Laugardaginn 22. ágúst kl. 12:00–18:00
- Sunnudaginn 23. ágúst kl. 12:00–17:00
- Kjördagur 29. ágúst lokað
Kjósendur skulu hafa meðferðis persónuskilríki.