Klébergsskóli og Breiðholtsskóli áfram í úrslit Skrekks
Fyrsta undanúrslitakvöld Skrekks 2026 fór fram í Borgarleikhúsinu í gærkvöldi, þann 9. nóvember. 227 ungmenni í Reykjavík tóku þátt í atriðum kvöldsins þar sem þau sýndu frumsamin sviðsverk og fjölbreyttir hæfileikar þeirra komu fram.
Breiðholtsskóli komst inn í úrslit með atriðið Dulan sem fjallar um örvæntingarfulla móður sem ber út barnið sitt en atriðið sækir innblástur í íslenska vögguvísu og draugasögur. Atriðið sem fleytti Klébergsskóla áfram í úrslit heitir Sveitin er geitin og fjallar um sveitadreng sem kemur Reykjavíkurdreng í skilning um að lífið í sveitinni er ekki frábrugðið lífinu í miðborginni.
Átta grunnskólar tóku þátt í gærkvöldi en það voru Breiðholtsskóli, Klettaskóli, Laugalækjarskóli, Réttarholtsskóli, Rimaskóli, Seljaskóli, Tjarnarskóli og Víkurskóli.
Í heildina er 793 þátttakendur í Skrekk í ár. Öll atriðin má sjá á vef UngRUV.is.
Forsíðumyndin er frá atriði Klébergsskóla.
Myndir tók Anton Bjarni.