Kjarasamningsumboð Reykjavíkurborgar til Sambands íslenskra sveitarfélaga 

Reykjavík í haustlitum Ragnar Th. Sigurðsson
Reykjavík í haustlitum séð úr lofti frá Elliðaárdal

Borgarráð hefur samþykkt að fela Sambandi íslenskra sveitarfélaga umboð til kjarasamningsgerðar fyrir hönd Reykjavíkurborgar við hlutaðeigandi stéttarfélög. Jafnframt verði samninganefnd Reykjavíkurborgar í kjaraviðræðum leyst undan störfum.

Samband íslenskra sveitarfélaga hefur farið með kjarasamningsumboð fyrir hönd Reykjavíkurborgar vegna stéttarfélaga innan Kennarasambands Íslands og Félags íslenskra hljómlistarmanna ásamt því að fara með samningsumboð fyrir Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins vegna Landsambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna og fyrir Strætó bs.  vegna Sameykis - stéttarfélags í almannaþjónustu. Reykjavíkurborg hefur verið sjálfstæður samningsaðili fram til þessa gagnvart öðrum stéttarfélögum. 

Samstarf opinberra launagreiðenda, þ.m.t. ríkis og sveitarfélaga, í kjaramálum hefur aukist til muna á allra síðustu árum, meðal annars með stofnun kjaramálaráðs og sameiginlegri kjarastefnu aðila frá árinu 2019. Hagsmunir Reykjavíkurborgar liggja í þéttu og öflugu samstarfi á vettvangi kjaramála hins opinbera en opinberir vinnuveitendur hafa lengi haft það að markmiði að styrkja samstarf sitt í kjaramálum. 

Samhliða flutningi á kjarasamningsumboði verði sameiginlegt eignarhald og ábyrgð á sameignarfélagi aðila, Jafnlaunastofu sf. endurskoðað og sviðsstjóra mannauðs- og starfsumhverfissviðs er falið að útfæra breytingar á sviðinu vegna þessara breytinga.