Jörfi, Vinagarður og Tjörn hljóta hvatningarverðlaun

Mynd frá Listasmiðju Jörfa.

Leikskólarnir Vinagarður, Jörfi og Tjörn hljóta Hvatningarverðlaun skóla- og frístundaráðs Reykjavíkur í ár. Er þetta í nítjánda sinn sem Hvatningarverðlaunin eru veitt en þeim er ætlað að vekja athygli á því gróskumikla skóla- og frístundastarfi sem fram fer í leikskólum borgarinnar.

Staðfesting á fyrirmyndarstarfi

Vinagarður hlaut verðlaunin fyrir tónlistar-, dans og kórverkefni, Jörfi fyrir listsköpunarverkefni og Tjörn fyrir gróðurhúsaverkefni. Alls bárust 55 tilnefningar að þessu sinni. 

Verðlaunin eru til að veita jákvæða hvatningu og til að viðhalda og stuðla að nýbreytni- og þróunarstarfi. Verðlaunin eru rós í hnappagat starfs þeirra leikskóla sem þau hljóta, þau eru viðurkenning fyrir vel unnin verk í þágu barna og staðfesting þess að starfið sé fyrirmynd annarra á því sviði sem um ræðir.

Tónlistar-, dans og kórverkefni - Vinagarður

Gerður Bolladóttir stýrir verkefninu á elstu deild í leikskólanum Vinagarði. Þar eru börnin kynnt fyrir ólíkum hljóðfærum, læra takt og ýmsa dansa. Á deildinni er einnig starfræktur kór þar sem börnin læra framkomu og aga. Almennt er mikið sungið í leikskólanum og læra börnin að koma fram auk þess sem söngurinn leggur góðan grunn að frekara námi, bæði tónlistarnámi og almennu námi.

Vinagarður er sjálfstætt rekinn leikskóli af KFUM. Í umsögn dómnefndar segir að verkefnið sé bæði áhugavert og þarft. Þá sé ekki spurning að þessi áhersla á tónlist og söng hafi mikil áhrif á málþroska barna. „Börn sem taka þátt í kórastarfi öðlast sterka sjálfsmynd, trú á eigin getu og ná árangri. Verkefnið fellur undir öll meginmarkmið Menntastefnu Reykjavíkur.“

Hvatningarverðlaunin veitt í Vinagerði.

Listasmiðjan í Jörfa - Jörfi

Í listasmiðju leikskólans Jörfa hefur Sanja Líf Markovic tekist að skapa framúrskarandi og faglegt starf sem hefur orðið fyrirmynd í skapandi leikskólastarfi á landsvísu. Undir stjórn Sönju Lífar hefur listsköpun með börnum þróast í vel skipulagðan og lifandi vettvang þar sem börn fá tækifæri til að kanna, prófa og skapa út frá eigin áhuga. Í listasmiðjunni er lögð áhersla á rannsóknarferli, sjálfstæði, samvinnu og fjölbreytta tjáningu í anda Reggio Emilia-hugmyndafræðinnar. Starfið tekur mið af ólíkum þörfum barna og þeim búið umhverfi sem styður sköpun, trú á eigin getu og gleði í námi. Listasmiðjan hefur einnig skapað sterka tengingu við samfélagið með mikilvægum sýnileika á Instagram-síðu leikskólans og hefur leitt til reglulegra heimsókna frá öðrum leikskólum.

Í umsögn dómnefndar segir að hugmyndaflug og áræðni Sönju Lífar í listasmiðju Jörfa sé með ólíkindum og þar séu börnin greinilega í stöðugri leit og þróun. „Dásamlegt er að sjá börnin vinna að þessum fjölbreyttu verkefnum þar sem gleði og innlifun vekja sérstaka athygli. Sköpun er margslungið ferli sem í grunninn byggist á forvitni, skapandi og gagnrýnni hugsun en líka á þekkingu, frumkvæði og leikni. Sköpun nær flugi þar sem áskoranir eru fjölbreyttar, spurningar eru opnar, lausnir margar og áhersla er lögð á framkvæmdina og sýnileika hennar. Starfið í Jörfa er svo sannarlega í anda Menntastefnu Reykjavíkur.“

Hvatningarverðlaun veitt í Jörfa.

Draumar geta ræst - Tjörn

Foreldrar barna í Tjörn höfðu frumkvæði að því að láta draum Huldu leikskólastjóra rætast. Hana hafði lengi dreymt um að fá gróðurhús á skólalóðina. Foreldrar ákváðu að hefja söfnun á Karolína fund og tókst að safna 300 þúsund krónum. Einnig fengu þau styrk frá Sumargjöf og keypt var gróðurhús. Þar rækta börnin papriku, kartöflur, rabarbara og kál undir handleiðslu Ástu Ragnheiðar Júlíusdóttur verkefnisstjóra þar sem alúð, sjálfbærni og þolinmæði eru í fyrirrúmi. Verkefnið er dæmi um frábært samstarf á milli foreldra og kennara og verður gróðurhúsið viðbótarstarfstöð frá lok mars og fram í október.

Í umsögn dómnefndar segir að verkefnið sé lýsandi dæmi um hvernig samtakamáttur barna, foreldra og starfsfólks getur leitt til árangurs á svo marga vegu. „Í Menntastefnu Reykjavíkur kemur fram að í kraftmiklu skólastarfi öðlast börn menntun og reynslu til að láta drauma sína rætast og hafa jákvæð áhrif á umhverfi og samfélag. Þetta verkefni er einmitt í anda þess og hefur grundvallarþekking barnanna á samfélaginu, náttúrunni og sjálfbærni aukist til muna.“ 

Hvatningarverðlaun veitt í Tjörn

Dómnefnd:

Alexandra Briem formaður, Ásta Björg Björgvinsdóttir, Stefán Pálsson og Sabine Leskopf, fulltrúar kjörinna fulltrúa í Skóla- og frístundaráði.
Andrea Sigurjónsdóttir fulltrúi Félags leikskólakennara, Halldóra Guðmundsdóttir fulltrúi stjórnenda leikskóla og Indíana Rós Ægisdóttir fulltrúi foreldra.