Jólasvellið á Ingólfstorgi opnar föstudaginn 20. nóvember
Það verður sannkölluð jólastemning í miðborg Reykjavíkur föstudaginn 20. nóvember kl. 18:00 þegar Jólasvellið á Ingólfstorgi opnar.
Hluti af Jólaborginni Reykjavík
Þetta er í tólfta sinn sem skautasvell er sett upp á Ingólfstorgi í aðdraganda jóla. Það hefur því um árabil verið órjúfanlegur hluti af hátíðarhöldunum í borginni og glatt íbúa og gesti á aðventunni.
Jólasvellið verður hluti af Jólaborginni Reykjavík þar sem jólaljós, skreytingar og fjölbreytt mannlíf skapa hátíðlega stemningu í hjarta borgarinnar. Á milli skautaferða er upplagt að drekka í sig jólastemninguna og ylja sér á heitu kakói á kaffihúsinu við svellið.
Svellið verður opið flesta daga frá klukkan 12–22. Hægt er að mæta á staðinn og skella sér á skauta eða bóka skautastund fyrir fram á www.jolasvellid.is, þar sem einnig má finna nánari upplýsingar um opnunartíma og verð. Hægt er að bóka skautastundir fyrir hópa með því að senda tölvupóst á info@jolasvellid.is.
Reykjavíkurborg hvetur fólk á öllum aldri til að leggja leið sína á Ingólfstorg, skella sér á skauta og njóta aðventunnar í hjarta borgarinnar.