Jólakötturinn mætir á Lækjartorg - Oslóartréð fellt í Heiðmörk

Ragnar Th. Sigurðsson
jólakötturinn á Lækjartorgi. Hjartalaga ljósmyndun fyrir ofan hann.

Laugardaginn 14. nóvember klukkan 17:00 verður kveikt á ljósunum á jólakettinum á Lækjartorgi.

Hildur Björnsdóttir, borgarstjóri, flytur stutta ræðu og fær aðstoð við að kveikja á jólakettinum.  Grýla og Leppalúði ætla að mæta í bæinn sérstaklega til að vera viðstödd tendrun heimiliskattarins og munu svo væntanlega bregða á leik. Lúðrasveitin Svanur mun flytja nokkur jólalög svo allir komist í jólaskap.

Kötturinn er um fimm metrar á hæð, sex metrar á breidd og er lýstur upp með 6500 led ljósum. Jólakötturinn var settur upp í fyrsta sinn árið 2018 og hefur ávallt vakið mikla athygli gesta og gangandi á torginu. Hönnun jólakattarins er samstarf Reykjavíkurborgar, MK-Illumination í Austurríki og fyrirtækisins Garðlist.

Jólakötturinn er ein af íslensku jólavættunum. Hann er gríðarstór, eins og segir í löngu kvæði Jóhannesar úr Kötlum um þessa óvætt sem er sögð leggja sér þá til munns sem ekki fá nýja flík fyrir jólin.

Athygli er vakin á því að jólamarkaðurinn á Austurvelli opnar kl. 13:00 laugardaginn 14. nóvember.

Oslóartréð fellt í Heiðmörk

Hildur Björnsdóttir, borgarstjóri mun fella Oslóartréð á skógræktarsvæði Skógræktarfélags Reykjavíkur í Heiðmörk  laugardaginn, 14. nóvember næstkomandi, klukkan 11:00. 

Borgarstjóri mun klæðast viðeigandi öryggisbúnaði og fær verkfæri til verksins og nýtur liðsinnis starfsmanns Skógræktarfélags Reykjavíkur. Um er að ræða um 50 metra hátt sitkagrenitré sem verður svo sett upp á Austurvelli og jólaljósin tendruð á trénu á fyrsta í aðventu þann 29. nóvember næstkomandi.

Hist verður við Elliðavatnsbæ klukkan 11:00 og keyrt þangað sem tréð stendur.

Boðið verður upp á léttar veitingar í boði norska sendiráðsins að loknu skógarhöggi.