Jóladalurinn í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum

Jólaljós í Fjölskyldu- og húsdýragarði

Fjölskyldu- og húsdýragarðurinn er kominn í jólabúning þar sem ótal jólaljós lýsa upp garðinn og skapa einstaka stemningu í skammdeginu. Garðurinn verður opinn alla virka daga frá kl. 10 til 17 og á laugardögum frá kl. 10 til 20 alla aðventuna.

Fyrstu þrjár aðventuhelgarnar verður sérstök jóladagskrá í boði fyrir alla fjölskylduna. Á laugardögum verða skemmtilegir viðburðir fyrir alla aldurshópa en á sunnudögum verður notaleg aðventustemning með föndri og tónlist. Gestum gefst einnig kostur á að taka þátt í útieldun við opinn eld og njóta veitinga frá matarvögnum á svæðinu. Hringekjan verður opin frá kl. 15 um helgar. Áhugasöm eru hvött til að fylgjast vel með á Facebook síðu garðsins. 

Jólaratleikur fyrir hressa krakka verður í gangi allan desember og hugrakkir gestir geta heimsótt jólaköttinn sem hefur komið sér fyrir í garðinum líkt og undanfarin ár. Hann heldur til í hryssingslegum kofa austast í Fjölskyldugarðinum. 

Stilltir og skráðir hundar eru velkomnir með í heimsókn í garðinn alla laugardaga og miðvikudaga. 

Þá verður hefðbundin dagskrá í kringum dýrin, þar sem gestir geta fræðst um íbúa garðsins og notið samvista við þau í rólegu og hátíðlegu umhverfi. Veitingasala Bæjarins Beztu verður opin um helgar. 

Milli jóla og nýárs verður opið frá kl. 10 til 17 en á aðfangadag, gamlársdag og nýársdag verður opið frá 10 til 15 og lokað á jóladag. Hefðbundinn aðgangseyrir verður allan desember.