Jensína Edda Hermannsdóttir er Reykvíkingur ársins 2026
Reykvíkingur ársins 2026 er Jensína Edda Hermannsdóttir, leikskólastýra Laufásborgar. Hildur Björnsdóttir borgarstjóri tilkynnti valið við opnun Elliðaáa í morgun, en þetta er í sextánda sinn sem Reykvíkingur ársins er valinn.
Jensína Edda Hermannsdóttir, Reykvíkingur ársins 2026 var mætt eldsnemma í morgun í Veiðihúsið við Elliðaár, en formleg opnun árinnar er í dag. Hildur Björnsdóttir borgarstjóri var mætt, tilkynnti valið á Reykvíkingi ársins og óskaði Jensu til hamingju. Hún sagði ánægjulegt að heiðra svo öflugan eldhuga og frumkvöðul í skólamálum sem sannarlega hefði snert líf margra fjölskyldna í borginni síðastliðna tvo áratugi.
Að lokinni hressingu og spjalli héldu Jensa og Hildur ásamt veiðileiðsögumanni á Breiðuna. Þar renndi Jensa fyrir laxi í boði borgarstjórans í Reykjavík og Stangveiðifélags Reykjavíkur sem hefur haft umsjón með ánum í 87 ár.
Óskað var eftir tilnefningum um einstaklinga sem hafa með háttsemi sinni eða atferli, verið til fyrirmyndar á einhvern hátt og eiga skilið að fá tilnefninguna Reykvíkingur ársins.
Eftir yfirferð á tilnefningum var tekin ákvörðun um að veita Jensínu Eddu titilinn. Í tilnefningum kom meðal annars fram að Jensa, eins og hún er ávallt kölluð, væri þekkt fyrir framlag sitt til uppeldismála og jákvæðrar sálfræði í skólastarfi. Hún væri lausnamiðuð og starfaði af heilindum að málefnum barnanna í leikskólanum.
Unnið með börnum síðan á síðustu öld
Jensa hefur helgað líf sitt því að standa með börnum og fjölskyldum þeirra. Á Laufásborg eru öll sem þar vinna í barnastarfi og engin eiginleg skrifstofa. „Við erum þar sem börnin eru,“ segir Jensa, en hún hefur sjálf tekið þátt í dagskránni með börnunum síðan á síðustu öld.
Jensa segir að á Laufásborg starfi samstilltur og metnaðarfullur hópur sem hafi unnið lengi saman, til dæmis starfi þar fjórir kennarar með samanlagt 100 ára starfsreynslu og mörg með tuttugu ár.
„Þetta starf er galdur og það heldur okkur á tánum. Það sem þú þarft að hafa er þinn innri styrkur og þú þarft að hafa sjálfstraust í þetta og vera vel meinandi manneskja sem trúir því að kærleikurinn sé besti leikurinn. Við erum hér á Laufásborg að lyfta og grípa hvort annað alla daga og trúum því að gleði sé fagmennska. Laufásborg starfar eftir Hjallastefnunni og í janúar á þessu ári tóku kennarar við rekstrinum og stofnað var félag sem heitir Hamingjuhöllin ehf. með vísan í það að Laufásborg er oft í daglegu tali nefnd Hamingjuhöllin,“segir Jensa glöð í bragði.
Arna Guðrún Jónsdóttir er sérkennslustjóri á Laufásborg og hefur starfað með Jensu í 20 ár. Hún segir Jensu vera einstaka og það séu forréttindi að starfa henni við hlið. Hún verðskuldi svo sannarlega að vera útnefnd Reykvíkingur ársins.
„Jensa byrjar hvern dag á að senda okkur öllum morgunskilaboð þar sem hún slær tóninn fyrir hvern skóladag. Þetta eru hvetjandi og leiðbeinandi orð til okkar allra um að umvefja og lyfta börnunum og sjá gullið í barnastarfinu. Jensa er leiðtogi sem lætur verkin tala og hún leiðir skólann með góðu fordæmi. Hún starfar af þvílíkri ástríðu og af slíkum heilindum að það lætur engan ósnortinn. Hún er til staðar fyrir okkur öll stór sem smá, núverandi sem fyrrum foreldra á Laufásborg og allt þar á milli. Jensa lætur gott af sér leiða til allra sem þurfa á henni að halda og kærleikur og viska einkennir alla hennar nálgun,“ segir Arna Guðrún.
Kærleiksrík manneskja sem vill láta gott af sér leiða
Jensu kom mjög á óvart að hún hefði verið valin og sagðist varla trúa sínum eigin eyrum. Það væri henni mikill heiður að fá útnefninguna fyrir ævistarfið sitt.
„Ég er mjög þakklát á hverjum degi að hafa valið þetta í lífinu. Að vera kærleiksrík manneskja og vilja láta gott af sér leiða er lykilatriði og að standa sterk. Ég tek við þessari dýrmætu viðurkenningu fyrir hönd okkar allra sem stöndum að Laufásborg, við erum eins og ein fjölskylda“ sagði Jensa að lokum.
Við óskum Jensínu Eddu til hamingju með útnefninguna!