Ísaksskóli eignast húsnæðið á ný

Frá undirituninni í morgun. Frá vinstri: Salóme Guðmundsdóttir, meðstjórnandi í stjórn Ísaksskóla, Páll Harðarson, stjórnarformaður í stjórn Ísaksskóla, Hildur Björnsdóttir, borgarstjóri og Sigríður Anna Guðjónsdóttir, skólastjóri Ísaksskóla.
Frá vinstri:  Salóme Guðmundsdóttir, meðstjórnandi í stjórn Ísaksskóla, Páll Harðarson, stjórnarformaður í stjórn Ísaksskóla, Hildur Björnsdóttir, borgarstjóri og Sigríður Anna Guðjónsdóttir, skólastjóri Ísaksskóla.

Í dag var undirritað afsal og önnur lokagögn vegna kaupa Ísaksskóla á fasteigninni að Bólstaðarhlíð 20.

Þar með er skólinn aftur orðinn eigandi að því húsnæði sem verið hefur heimili skólastarfsins um áratuga skeið og hefur tryggt starfseminni traustan grunn til framtíðar.

Kaupin byggja á endurkauparétti sem samið var um við Reykjavíkurborg árið 2011 og markar þessi undirritun mikilvæg tímamót á 100 ára afmælisári Ísaksskóla.

Aðdraganda sölunnar má rekja til samnings sem gerður var árið 2011 þegar Reykjavíkurborg keypti húsnæði skólans af sjálfseignarstofnuninni. Í kaupsamningnum var sérstakt ákvæði til 15 ára þar sem stefnt var að því að skólinn eignaðist húsnæðið aftur þegar fjárhagsstaða hans leyfði

Nemendur Ísaksskóla komu saman á sal og sungu nokkur lög í tilefni tímamótanna.
Nemendur Ísaksskóla komu saman á sal og sungu nokkur lög í tilefni tímamótanna.

Til hamingju Ísaksskóli!