Innköllun á Salling Øko Dild

Innköllun á kryddi Salling Øko Dild

Aðföng, að höfðu samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur, hafa stöðvað sölu og innkallað frá neytendum kryddið Salling Øko Dild.

Ástæða innköllunar

Varan getur innihaldið aðskotahluti (skordýr).

Upplýsingar um vöru sem innköllunin einskorðast við

Vörumerki: Salling 

Vöruheiti:   Øko Dild

Strikamerki: 5712877909045

Lotunúmer og best fyrir dagsetning: 007221 og 009157

Best fyrir dagsetning:15.09.2027 og 25.03.2028

Nettómagn: 15 g

Framleiðandi:                                                                   DAVA Foods Ingredients A/S í Danmörku

Heiti og heimilisfang fyrirtækis sem innkallar vöru

Aðföng, Skútuvogi 7-9, 104 Reykjavík.

Dreifing (verslanir)

Verslanir Bónuss og Hagkaupa um land allt.

Leiðbeiningar til neytenda
Neytendur sem hafa keypt umrædda vöru eru beðnir um að hætta notkun hennar og farga en einnig má skila henni í versluninni þar sem hún var keypt gegn fullri endurgreiðslu.  Nánari upplýsingar um innköllunina veitir gæðastjóri Aðfanga í síma 530 5600 eða í gegnum netfangið gm[hja]adfong.is.