Innköllun á Bónus Hnetublöndu með trönuberjum og pistasíum

Bónus Hentublanda með trönuberjum og pistasíum

Aðföng, að höfðu samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur, hefur stöðvað sölu og innkallað frá neytendum Bónus Hnetublöndu með trönuberjum og pistasíum.

Aðföng, að höfðu samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur, hefur stöðvað sölu og innkallað frá neytendum Bónus Hnetublöndu með trönuberjum og pistasíum.

Ástæða innköllunar er að aðskotahlutur (trébútur) fannst í einum poka.

Upplýsingar um vöru sem innköllunin einskorðast við:

Vörumerki: Bónus
Vöruheiti: Hnetublanda með trönuberjum og pistasíum
Nettómagn: 400g
Strikamerki: 5694311960501
Best fyrir dagsetning: 15.05.2027
Lotunúmer: 150901
Framleiðandi: Pakkað af H-Berg í Hafnarfirði
Dreifing: Verslanir Bónuss

Heiti og heimilisfang fyrirtækis sem innkallar vöru: Aðföng, Skútuvogi 7-9, 104 Reykjavík.

Dreifing (verslanir): Verslanir Bónuss um land allt.

Leiðbeiningar til neytenda: Neytendur sem hafa keypt umrædda vöru eru beðnir um að hætta notkun hennar og farga en einnig má skila henni í versluninni þar sem hún var keypt gegn fullri endurgreiðslu.  Nánari upplýsingar um innköllunina veitir gæðastjóri Aðfanga í síma 530 5600 eða í gegnum netfangið gm[hja]adfong.is.