Hverfadagar Heiðu Bjargar í Hlíðahverfi

Útivistarsvæðið Klambratún er í hjarta Hlíðahverfis

Hverfadagar Heiðu Bjargar borgarstjóra hófust í morgun í Hlíðahverfi og munu standa yfir til 6. mars.

Á hverfadögum mun borgarstjóri heimsækja leik- og grunnskóla hverfisins og heilsa upp á nemendur og kennara. Heiða Björg mun heimsækja Hlíðaskóla, Stakkaborg, MH og HR. Þá mun hún einnig heimsækja Konukot, Fæðingarheimili Reykjavíkur og Ævintýraborg við Nauthólsveg. Í hverju hverfi heldur svo borgarstjóri fund með stjórnum foreldrafélaga.

Fimmtudaginn 5. mars býður borgarstjóri upp á kaffi og spjall í Samfélagshúsinu Bólstaðarhlíð 43 klukkan 17:00.

Öll velkomin!

Boðið verður upp á léttar veitingar og gestir og gangandi geta rætt málin við hana og fulltrúa yfirstjórnar borgarinnar.

Hverfadögum borgarstjóra lýkur 6. mars.