Hvatningarverðlaun fyrir frístundastarf afhent

Frá uppskeruhátíð frístundastarfs í Reykjavík. Höfuðið í bleyti.

Hvatningarverðlaun skóla- og frístundaráðs fyrir framúrskarandi frístundastarf 2025–2026 voru afhent í morgun við hátíðlega athöfn. Verðlaunin eru veitt verkefnum sem þykja skara fram úr í starfi með börnum og ungmennum og endurspegla markmið menntastefnu Reykjavíkurborgar um virka þátttöku, lýðræði, jafnrétti og skapandi starf.

Öflug verkefni í frístundaheimilum

Í flokki frístundaheimila hlaut verkefnið Krakkahjálparinn í Eldflauginni hvatningarverðlaun. Verkefnið leggur áherslu á samkennd, samfélagsvitund og ábyrgð barna með því að þau leiði eigin samfélagsverkefni. Þar fá börn tækifæri til að æfa lýðræði, samvinnu og frumkvæði og taka virkan þátt í mótun síns nærumhverfis.

Frá uppskeruhátíð frístundastarfs í Reykjavík. Höfuðið í bleyti.

Einnig voru veitt hvatningarverðlaun fyrir Barnablað Miðbergs, samstarfsverkefni frístundaheimila. Blaðið styður við miðlalæsi, lestrarhvatningu og skapandi tjáningu barna og skapar vettvang fyrir lýðræðislega þátttöku þeirra. Verkefnið er jafnframt dæmi um árangursríkt samstarf og sameiginlega þróun starfs.

Frá uppskeruhátíð frístundastarfs í Reykjavík. Höfuðið í bleyti.

Skapandi og inngildandi starf með ungmennum

Þá hlaut Hinsegin vinnuskólahópur hvatningarverðlaun. Verkefnið er samstarf Hinsegin félagsmiðstöðvarinnar og Leiklistarskóla Borgarleikhússins og styður sérstaklega ungmenni í jaðarsettri stöðu.

Í verkefninu er lögð áhersla á sköpun og nýsköpun í gegnum leiklist, tónlist og dans. Með þátttöku sinni fá ungmennin tækifæri til að efla sjálfsmynd, sjálfstraust og félagslega hæfni í öruggu og styðjandi umhverfi.

Frá uppskeruhátíð frístundastarfs í Reykjavík. Höfuðið í bleyti.

Öflug samstarfsverkefni fá viðurkenningar

Í flokki samstarfsverkefna hlutu tvö verkefni viðurkenningu.

Farsæld til framtíðar er samstarfsverkefni félagsmiðstöðvanna Hundrað&ellefu og Bakkans ásamt Hólabrekku-, Fella- og Breiðholtsskóla. Verkefnið miðar að því að styðja við heildræna vellíðan nemenda, efla félagsfærni og tryggja að börn og ungmenni fái stuðning á réttum tíma. Þverfaglegt samstarf aðila endurspeglar skýrt áherslur menntastefnunnar um fagmennsku, jöfn tækifæri og samvinnu.

Frá uppskeruhátíð frístundastarfs í Reykjavík. Höfuðið í bleyti.

Einnig fékk Ungmennahús Breiðholts viðurkenningu fyrir öflugt 16+ starf. Verkefnið er samstarf frístundamiðstöðvarinnar Miðbergs, Fjölbrautaskólans í Breiðholti og Suðurmiðstöðvar. Þar er lögð áhersla á tengslamyndun og stuðning við ungmenni í viðkvæmri stöðu. Starfið eflir sjálfsmynd og sjálfstraust þeirra sem standa utan hefðbundinna kerfa og skapar raunveruleg tækifæri til virkrar þátttöku í samfélaginu.

Frá uppskeruhátíð frístundastarfs í Reykjavík. Höfuðið í bleyti.