HönnunarMars 2026 - stútfull dagskrá um alla borg
HönnunarMars 2026, sem er ein af borgarhátíðum Reykjavíkur, hefst á morgun þann 6. maí. Hátíðin setur svo sannarlega svip sinn á umhverfið og breiðir úr sér um alla borg til 10. maí næstkomandi.
HönnunarMars er lifandi vettvangur hugmynda, ólíkra sjónarhorna og þekkingar, þar sem íslensk og alþjóðleg hönnun mætast. Afl sem nærir samfélagið og ýtir því áfram. Yfirþema HönnunarMars 2026 er Tengingar. Í heimi sem einkennist bæði af ofurtengingu og aftengingu beinir hátíðin sjónum að grunnþörf manneskjunnar fyrir tengsl.
Fjölbreytt og spennandi dagskrá um alla borg
Á HönnunarMars verður boðið upp á yfir 100 sýningar og 150 viðburði sem fléttast saman í lifandi heild þar sem um 400 skapandi hugar mætast. Hátíðin breiðir úr sér um alla borg og umbreytir Reykjavík í vettvang uppgötvana. Sýningar og viðburðir fara meðal annars fram víða í miðborginni, Listasafni Reykjavíkur, Hönnunarsafni Íslands, Norræna húsinu, Grósku, Elliðaárstöð, Ásmundarsal, Þjóðminjasafni Íslands, RAFNAR bátasmiðju, Hafnartorg, Gamla bíó og fleiri stöðum. Einnig á óvæntari stöðum eins og í Vesturbæjarlaug, í World Class Laugum og við Ylströndina í Nauthólsvík. Þá er einnig spennandi dagskrá á þremur veitingastöðum í miðborginni.
Veislan hefst með DesignTalks í Silfurbergi í Hörpu þann 6. maí kl. 9:00 - 17:00 þar sem kraftmiklir alþjóðlegir og innlendir fyrirlesarar kveikja innblástur áður en hátíðin fer á fullt skrið. Þann 7. maí fer hátíðaropnun HönnunarMars fram í Gamla bíó kl. 17:00 og í kjölfarið opna sýningar um alla miðborg með viðburðum fram eftir kvöldi.
HönnunarMars er árleg uppskeruhátíð íslenskrar hönnunar og arkitektúrs þar sem skapandi greinar mætast og nýjar tengingar verða til. Þar má finna allt frá tilraunakenndum verkefnum og nýsköpun til endurvinnslu, handverkshefða og djörfra hugmynda um framtíðina.
Dagskráin er opin öllum og býður upp á eitthvað fyrir hvert og eitt, hvort sem þú ert fagmanneskja í hönnun eða einfaldlega forvitin/n um hvernig hönnun mótar heiminn okkar.
Kynntu þér dagskrá Hönnunarmars, þú finnur áreiðanlega eitthvað við þitt hæfi - Ert’að tengja?