Hljómsveitin Falinn gjóður sigraði Músíktilraunir 2026

Meðlimir hljómsveitarinnar Falinn gjóður taka við verðlaunum sínum á Músíktilraunum.
Hljómsveitin Falinn gjóður vann Músíktilraunir 2026

31 frábært tónlistaratriði tók þátt í Músíktilraunum 2026. Hljómsveitin Falinn gjóður bar sigur úr bítum.

Mikil fjölbreytni var í stefnum og stílum atriðanna og aðsókn á bæði undan- og úrslitakvöld var með eindæmum góð, sérstaklega með tilliti til veðurs sem var vægast sagt skrautlegt, og mátti ekki tæpara standa að allir keppendur kæmust á svæðið.

Eftir æsispennandi úrslitakvöld þar sem 11 atriði kepptu var niðurstaða dómnefndar og símakosningar tilkynnt. Glæsileg verðlaun voru veitt: hljóðverstímar, spilamennska á tónlistarhátíðum, flug með Icelandair og úttektir í hljóðfæraverslunum svo dæmi séu nefnd. Öllum keppendum tilraunanna er svo boðið í Hitakassann; námskeið haldið af Tónlistarmiðstöð, Hinu húsinu og Tónlistarborginni Reykjavík sem undirbýr ungt fólk fyrir feril í tónlist.

Í úrslitum Músíktilrauna 2026 kepptu eftirfarandi atriði:

Falinn Gjóður, Gammosíur, Lára, Myrkviði, Noisegate, Impazzive, Ovium, Brenninetla, Útumallt & appelsín, Zötzy, Þrumudætur. 

Eftirfarandi aðilar hlutu verðlaun á Músíktilraununum í ár og verður spennandi að fylgjast með þessu hæfileikaríka tónlistarfólki í framtíðinni:

1. verðlaun: Falinn gjóður

Hljómsveitin Brenninetla varð í öðru sæti Músíktilrauna
Brenninetla flytur tónlist á sviði á Músíktilraunum 2026.

2. verðlaun: Brenninetla

Lára varð í þriðja sæti og tekur hér við verðlaunum.
Lára varð í þriðja sæti og tekur hér við verðlaunum sínum á úrslitakvöldinu sem Biggi í Gusgus afhenti henni.

3. verðlaun: Lára

 

Hljómsveit fólksins: Gammosíur

Söngvari
Lára Björk Hall – Gammosíur

Hljómsveit fólksins Gammosíur
Hljómsveitin Gammosíur á sviði eftir verðlaunaafhendinguna. Með þeim er Elín Hall tónlistarkona sem afhenti verðlaunin.

Gítarleikari Músíktilrauna
Stígur Grendal Sævarsson – Brenninetla

Bassaleikari Músíktilrauna
Úlfhildur Júlía Stephensen – Gammosíur

Hljómborðsleikari Músíktilrauna
Baldur Þórarinsson – Falinn gjóður

Trommuleikari
Andri Eyfjörð –  Myrkviði

Rafheili Músíktilrauna
Lára Rún Eggertsdóttir – Lára

Höfundaverðlaun FTT
Útumallt & appelsín

Viðurkenning fyrir textagerð á íslensku
Myrkviði

Innilega til hamingju með verðlaunin!