Helga Lára Haarde aðstoðarmaður borgarstjóra
Helga Lára Haarde verður aðstoðarmaður Hildar Björnsdóttur borgarstjóra.
Helga kemur frá ráðgjafafyrirtækinu Attentus þar sem hún hefur starfað undanfarin tæp tíu ár sem ráðgjafi í mannauðsmálum og klínískur sálfræðingur. Þar áður vann Helga hjá Maskínu við gerð viðhorfskannana.
Helga er menntaður klínískur sálfræðingur frá Háskólanum í Reykjavík.
Helga hefur gegnt ýmsum trúnaðarstörfum fyrir Sjálfstæðisflokkinn gegnum árin og var kosningastjóri fyrir flokkinn í borgarstjórnarkosningunum síðastliðið vor.
Helga hefur störf á skrifstofu borgarstjóra á næstu vikum.