Hærri frístundastyrkur og stefna um gervigreind meðal tillagna
Fundur Reykjavíkurráðs ungmenna með borgarstjórn Reykjavíkur fór fram í 25. sinn í dag. Fulltrúar Reykjavíkurráðsins báru upp átta tillögur um málefni sem þau telja mikilvæg ungu fólki í Reykjavík.
Tillögurnar snúa að árlegum styrk til bókakaupa, lengri opnunartíma sundlauga og félagsmiðstöðva, að ungmenni hafi áheyrnarrétt í fleiri fagráðum Reykjavíkurborgar, hlutastörfum fyrir unglinga yfir vetrartímann, stefnumótun vegna notkunar gervigreindar í grunnskólum, hækkun á frístundastyrk og kennslu í sjálfsvörn í elstu bekkjum grunnskóla. Meðfylgjandi er yfirlit yfir tillögurnar sem lagðar verða fyrir borgarstjórn á fundinum.
Rödd ungmenna í sal borgarstjórnar árlegur viðburður
Reykjavíkurborg var eitt fyrsta sveitarfélagið á landinu til að stofna ungmennaráð og nú er fundur Reykjavíkurráðs ungmenna og borgarstjórnar orðinn að árvissum viðburði. Fundurinn í ár er sá tuttugasti og fimmti og tillögurnar sem lagðar hafa verið fram á fundum ungmenna og borgarstjórnar undanfarin ár hafa margar komist í framkvæmd og haft áhrif til góðs fyrir ungmenni í borginni. Þessi hefð hefur leitt af sér aukna áherslu á samstarf við ungmenni innan borgarkerfisins og á lýðræðislega starfshætti í starfi með börnum og ungmennum.
Vikulegir fundir og fjölbreytt verkefni
Fulltrúar í Reykjavíkurráði ungmenna hafa tekið þátt í fjölbreyttum og spennandi verkefnum síðastliðið ár en ráðið hittist á vikulegum fundum yfir vetrartímann.
Ráðið á fulltrúa í skóla- og frístundaráði og stjórn barnamenningarhátíðar og hefur fylgt tillögum frá borgarstjórnarfundum eftir inn í fagráð og nefndir. Haldinn er árlegur samráðsfundur með fulltrúum frá Strætó bs. til að ræða það sem betur má fara í strætósamgöngum í borginni, veitt endurgjöf á ýmis verkefni sem verið er að vinna að í borginni hverju sinni og tekið þátt í samstarfsverkefnum og ráðstefnum.
Reykjavíkurráð ungmenna mikilvægur vettvangur
Reykjavíkurráð ungmenna er samráðsvettvangur allra sex ungmennaráðanna sem starfa í hverfum Reykjavíkur en hvert ungmennaráð tilnefnir sína fulltrúa í Reykjavíkurráðið. Markmið með starfsemi Reykjavíkurráðs ungmenna og ungmennaráðanna í Reykjavík er meðal annars að skapa vettvang og leiðir til þess að gera þeim sem eru yngri en 18 ára kleift að koma skoðunum sínum og tillögum á framfæri og þjálfast í lýðræðislegum vinnubrögðum.
Á efri myndinni eru: Efri röð frá vinstri: Jökull Logi Sigurjónsson, Jörundur Þór Hákonarson, Indriði Nökkvi Þóreyjarson, Dagbjört Freyja Gígja. Neðri röð frá vinstri: Magnús Sigurður Jónasson, Ragnheiður Gróa Elvarsdóttir, Sigríður Dúa Brynjarsdóttir og Sjöfn Sveinsdóttir.