Gróðurinn í borginni í blóma

Fjölskyldugarður

Gróðurinn í borginni er í blóma um þessar mundir. Það var því kjörið að koma við á Fiskislóð og skreppa í stutta skoðunarferð um borgarlandið með Mörtu Guðrúnu Daníelsdóttur garðyrkjustjóra Reykjavíkur, til að finna smjörþefinn af sumarstarfinu.

Á sumrin eru yfir 200 manns að störfum við að halda gróðursvæðum öruggum, aðgengilegum og síðast en ekki síst fallegum. Bækistöðvarnar eru á Fiskislóð og í Elliðaárdal, Jafnaseli og Laugadal. Verkefnin eru um alla borg, einnig í Öskjuhlíð og Austurheiðum.

Marta Guðrún varð garðyrkjustjóri hausið 2025 og er þetta því fyrsta heila sumarið hennar í starfinu. Hún er umhverfisverkfræðingur að mennt og finnst þetta spennandi og gefandi starf. 

Við fórum saman í Laugardalinn og fengum fylgd með Gullu eða Guðlaugu Guðjónsdóttur yfirverkstjóra. Þar var verið að snúa moltu sem síðar verður notuð í beð. Laugardalurinn er fagur á að líta og gaman að sjá blómin blómstra. Garðyrkjan velur liti og tegundir ár hvert og svo eru þau ræktuð í Ræktunarstöð borgarinnar.

Endurkoma Batman í fjölskyldugarðinn

Við komum einnig við í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum og þar mátti sjá Batman-merkið gert úr blómum. Leðurblökumaðurinn hefur einu sinni áður birst í garðinum og hér er því um endurkomu að ræða. 

Við fengum því að sjá mörg sýnishorn af verkunum sem nú eru unnin af starfsfólki garðyrkjunnar. Gullregn hangir yfir göngubrú og blómatorgin eru fagurskreytt.

Austurberg í Breiðholti

Við fórum einnig í Austurberg í Breiðholtinu en þar er margt að sjá, meðal annars nýjan áfangastað sem útskriftarnemendur í Garðyrkjuskólanum gerðu í samstarfi við borgina. Við hittum líka starfsfólk frá Hverfaþjónustunni sem var að mála leiktæki og aðra sem voru að vökva blómaker og körfur. 

Við hvetjum borgarbúa til að veita jurtaríkinu athygli í borginni og njóta fegurðinnar.