Grassláttur hafinn í Reykjavík
Grassláttur er hafinn í Reykjavík og er kominn vel á veg í vestur- og austurhluta borgarinnar.
Hægt er að fylgjast með framvindunni í Borgarvefsjá þar sem birtar eru upplýsingar um hvaða svæði hafa verið slegin. Einnig er hægt er að kalla fram síðustu úttekt á verki og fjölda sláttuumferða.
Reykjavíkurborg sér um grasslátt á borgarlandi, í almenningsgörðum, meðfram þjóðvegum í þéttbýli og á grunn- og leikskólalóðum. Ekki er slegið innan lóða hjá fólki og eru íbúar hvattir til að kynna sér lóðamörk.