Grafarvogur friðlýstur

Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri og Jóhann Páll Jóhannsson ráðherra. Borgarstjóri fagnaði friðlýsingunni í tölu sinni við spegilsléttan Grafarvog sem skein við sólu þegar undirritunin fór fram um hádegisbilið í dag.
Borgarstjóri og ráðherra við Grafarvog.

Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, undirritaði í dag friðlýsingu Grafarvogs. Vogurinn er friðlýstur sem friðland og nær friðlýsingin til vogsins innan við Gullinbrú. Friðlýsingin var unnin í samstarfi Reykjavíkurborgar og Náttúruverndarstofnunar. 

Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri fagnaði friðlýsingunni í tölu sinni við spegilsléttan Grafarvog sem skein við sólu þegar undirritunin fór fram um hádegisbilið í dag. Hún sagði svæðið hafa bæði sögulegt og náttúrufræðilegt gildi fyrir Reykjavík. „Fyrir borgarbúa er vogurinn hjartað í vinsælu útivistarsvæði og fá svæði í borginni eru eins aðgengileg fyrir náttúruupplifun og til að stunda fuglaskoðun,“ sagði hún en markmiðið með friðlýsingunni er að vernda mikilvægar fjöruvistgerðir og búsvæði fugla. Friðlýsingunni er líka ætlað að tryggja aðgengi almennings að svæðinu til náttúruupplifunar, fuglaskoðunar og fræðslu.

Fyrir borgarbúa er vogurinn hjartað í vinsælu útivistarsvæði og fá svæði í borginni eru eins aðgengileg fyrir náttúruupplifun og til að stunda fuglaskoðun

Mikilvægur fyrir fjölda fuglategunda

Verndargildi Grafarvogs er hátt, en svæðið er eitt af fáum svæðum í borginni þar sem enn finnast tiltölulega óraskaðar leirur. Leirur eru viðkomustaður farfugla, einkum vaðfugla, og fóstra ríkulegt fuglalíf árið um kring. Vogurinn er þannig mikilvægur viðkomu- og fæðuöflunarstaður fyrir fjölda fuglategunda, en margar þeirra fuglategunda  sem nýta svæðið eru á válista eða í yfirvofandi hættu. Má þar meðal annars nefna fýl, hvítmáf, sendling og svartbak. 

Stórir hópar af rauðbrysting, sanderlu, lóuþræl, stelk, jaðrakan og sandlóu eru einnig reglulega á leirunum á fartíma, bæði um vor og á haustin. Þá er Grafarvogurinn lykilsvæði fyrir heiðlóur á haustin er þær hópa sig þar fyrir brottför.

Hið friðlýsta svæði er 0,5 km² að stærð.

Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra: „Vogurinn er ljómandi gott dæmi um friðlýsingu sem stuðlar að líffræðilegri fjölbreytni, því hér tryggjum við samastað fyrir ýmsar fuglategundir sem nýta voginn til að nærast og hvílast. Fólk nýtur þess líka að ganga meðfram voginum og með þessari friðlýsingu tryggjum við að náttúrulega umhverfið standi óbreytt, okkur og fuglunum til góða.“ 

Viðstödd friðlýsinguna voru, auk ráðherra og borgarstjóra, fulltrúar og starfsfólk Reykjavíkurborgar, ráðuneytisins og Náttúruverndarstofnunar.