Grænlenska fánanum flaggað við Ráðhúsið

Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri dregur grænlenska fánann að húni við Ráðhús Reykjavíkur. Róbert Reynisson
Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri dregur grænlenska fánann að húni við Ráðhús Reykjavíkur. Ráðhús og áhorfendur í bakgrunni.

Grænlenski fáninn var dreginn að húni við Ráðhús Reykjavíkur á hádegi í dag, til að sýna nágrönnum táknræna samstöðu.

Samþykkt var á fundi borgarstjórnar á þriðjudaginn að flagga fána Grænlands við Ráðhúsið. Markmiðið er, samkvæmt tillögu borgarstjóra, „að sýna nágrönnum okkar táknræna samstöðu í anda vestnorrænnar samvinnu. Grænlenska fánanum verði flaggað við hlið íslenska fánans á fánastöngum norðvestan við Ráðhús Reykjavíkur í samræmi við íslensk fánalög, næstu vikur,“ segir í tillögunni.

Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri og Malu Hendriksen, grænlenskur starfsnemi á sendiskrifstofu Grænlands á Íslandi. Þæ halda á íslenska fánanum, reiðbúnar að draga hann að húni. Skömmu síðar var sá grænlenski dreginn að húni. Fólk í bakgrunni, blár himinn, vetur.
Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri og Malu Hendriksen, grænlenskur starfsnemi á sendiskrifstofu Grænlands á Íslandi.

Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri dró grænlenska fáninn að húni í dag við hlið þess íslenska, að viðstöddum meðal annars fulltrúum sendiskrifstofu Grænlands á Íslandi. Henni til aðstoðar var Malu Hendriksen, sem er grænlenskur starfsnemi á sendiskrifstofunni.

Tillaga borgarstjóra um flöggun á fána Grænlands við Ráðhús Reykjavíkur.

Hópur fólks við Ráðhúsið eftir að grænlenski fáninn var dreginn að húni.
Viðstödd athöfnina voru meðal annars borgarfulltrúar og fulltrúar sendiskrifstofu Grænlands á Íslandi.
Íslenski og grænlenski fáninn við hún á fánastöngum Ráðhússins. Ráðhúsið í bakgrunni, sól á bláum himni. Logn.