Gott mál haldið í fimmtánda sinn í Hagaskóla
Góðgerðardagurinn Gott mál var haldinn í Hagaskóla í fimmtánda sinn í gær, fimmtudaginn 19. nóvember. Nemendur og starfsfólk höfðu lagt mikla vinnu í undirbúning síðustu vikurnar og boðið var upp á fjölbreytta dagskrá í skólanum. Dagurinn heppnaðist vel og var fullt út úr dyrum.
Markmiðið með Gott mál er ekki aðeins að safna fé fyrir góð málefni heldur einnig að gefa nemendum tækifæri til að kynnast góðgerðarstarfi og mikilvægi þess að láta gott af sér leiða og vera virkir þátttakendur í samfélaginu.
Fjölbreytt dagskrá um allan skólann
Nemendur létu hugmyndaflugið ráða för og var margt um að vera í skólastofunum. Þar mátti meðal annars finna snyrtistofur, hárgreiðslu, spákonur, myndakassa, loppumarkaði, leikjasali og tívolí. Í öðrum stofum voru þemu á borð við Minecraft, Miami, New York, íþróttir og jól.
Elstu nemendurnir buðu meðal annars upp á franskt kaffihús, jólakaffihús, Grinch-pizzustað, taco-veitingahús, karnival, bandarískan „diner“ og kaffihús í anda níunda áratugarins.
Gott mál byggir á virkri þátttöku nemenda og hefur undirbúningur staðið yfir í nokkrar vikur. Líkt og undanfarin ár fengu fjölbreyttir hæfileikar og hugmyndir nemenda þannig að njóta sín.
Styrkja tvö góð málefni
Á hverju ári eru valin málefni sem ágóði dagsins rennur til. Í ár ákváðu nemendur að styrkja Krabbameinsfélagið og börn og ungmenni í Suður-Súdan.
Gott mál er mikilvæg leið Hagaskóla til að efla samfélagslega ábyrgð nemenda og vekja athygli á því hvernig hvert og eitt okkar getur lagt sitt af mörkum til góðs.