Glæsileg frammistaða Skólahljómsveita á opnun Listahátíðar í Reykjavík 2026
Skólahljómsveitir Reykjavíkurborgar tóku þátt í frumflutningi nýs tónverks eftir Samúel Jón Samúelsson tónlistarmann, sem nefnist Loftvægi, við opnun Listahátíðar í Reykjavík í ár. Við skyggnumst á bak við tjöldin við undirbúning verksins.
Fjórar skólahljómsveitir Reykjavíkurborgar, skipaðar 600 ungmennum, fluttu verkið fyrir framan Hörpu þar sem þær komu hver úr sinni átt og tengdust í lokin. Loftvægi er gamalt hugtak yfir loftþrýsting sem vísar í jafnt vægi allra sem blása í verkinu.
Að baki liggja þrotlausar æfingar og undirbúningur. Ungmennin sem tóku þátt eiga þökk skilið fyrir frábæran flutning á fallegu tónverki eftir Samúel Jón. Um listræna útfærslu, sáu Samúel og Lára Sóley Jóhannsdóttir, listrænn stjórnandi Listahátíðar, auk Valgerðar Rúnarsdóttur, danshöfundar.
Skólahljómsveitir mikilvægar í hverfum borgarinnar
Skólahljómsveitir Reykjavíkurborgar sinna afar mikilvægu tónlistarstarfi í hverfum borgarinnar sem hefur veitt ungmennum tækifæri til þess að stunda tónlistarnám. Þær hafa glætt borgina lífi svo áratugum skiptir. Skólahljómsveit Vesturbæjar og Austurbæjar hafa starfað frá árinu 1954, Skólahljómsveit Árbæjar og Breiðholts frá árinu 1968 og Skólahljómsveit Grafarvogs hóf starfsemi 1992.
Í meðfylgjandi myndbandi sem fáum við að skyggnast á bak við tjöldin hvernig undirbúningurinn gekk fyrir sig. Myndbandið gerðu Antonía Lárusdóttir og Erla Stefánsdóttir verkefnastjórar myndrænnar miðlunar ásamt Róberti Reynissyni, ljósmyndara.